| |
BÓKA- OG SKJALASAFN
Bókasafn Skipulagsstofnunar er sérfræðibókasafn á sviði skipulags- og byggingarmála og umhverfismats.
Skjalasafn Skipulagsstofnunar starfar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands og meðferð skjala í opinberum stofnunum. Safnið hefur að geyma bréfasafn, safn skipulagsáætlana þ.e. greinargerðir og uppdrætti, safn matsáætlana og matsskýrslna og gagnagrunn um gildandi skipulagsáætlanir og framkvæmdir sem verið hafa til meðferðar vegna mats á umhverfisáhrifum. Bréfasafn hefur verið skráð og vistað í Lotus Notes skjalavistunarkerfi frá árinu 1997 og fer vinna með þau fram á rafrænu formi. Verið er að vinna að endurskoðun verklags og skráningar í skjalavistunarkerfinu.
Skipulagsvefsjá / Skipulagsskrá
Unnið er að uppbyggingu og þróun rafræns gagnagrunns um landupplýsingar og skipulagsáætlanir vegna birtingar upplýsinga á heimasíðu Skst. Verkefni þetta er að hluta til styrkt af íslenska upplýsingasamfélaginu.
|
|