Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
  DEILISKIPULAG
Deiliskipulag nær til einstakra svæða innan sveitarfélags og er nánari útfærsla á aðalskipulagi. Það er lagalegur grundvöllur fyrir útgáfu bygginga- og framkvæmdaleyfa og er ætlað að tryggja réttaröryggi og gæði manngerðs umhverfis í þéttbýli og dreifbýli. Ákvarðanir í deiliskipulagi skulu teknar með lýðræðislegum hætti í samráði við almenning og aðra hagsmunaaðila.

Á þessari síðu er að finna skjöl með nánari upplýsingum um deiliskipulag ásamt leiðbeiningum um gerð þess, framsetningu gagna og málsmeðferð þ.m.t. um aðkomu hagsmunaaðila. Sett eru fram dæmi um verkferli, bókanir á afgreiðslum, auglýsingar, bréf o.fl. Deiliskipulagsuppdrættir úr skjalasafni Skipulagsstofnunar eru notaðir sem dæmi um framsetningu. Leiðbeiningarnar eru unnar á Skipulagsstofnun. Ábendingar skulu sendar á netfangið mailto: malfridur@skipulag.is

Upplýsingar um deiliskipulagáætlanir veitir viðkomandi sveitarfélag og Skipulagsstofnun. Áður en samþykkt deiliskipulag tekur gildi þá yfirfer Skipulagsstofnun gögn þess og gerir sveitarstjórn viðvart ef á því eru form- eða efnisgallar. Stofnunin veitir sveitarfélögunum jafnframt ráðgjöf varðandi gerð deiliskipulags, stuðlar að útgáfu leiðbeininga o.fl.

Leiðbeiningablöð um gerð deiliskipulags

Til að sjá yfirlit yfir og kalla fram einstaka kafla hvers skjals skal hafa sjónarhornið “bookmark” opið.

NÝTT - Ferli málsmeðferð deiliskipulags samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana 46.30 kb (1.útg_jan2008)

Almennt um deiliskipulag 472 kb (útg.1_des2006)
Verkáætlun fyrir gerð deiliskipulags 525 kb (útg.1_des2006)
Málsmeðferð og stjórnsýsla deiliskipulags 735 kb (útg.1_des2006)
Framsetning deiliskipulags 2,17 Mb (útg.1_des2006)

Styttri leiðbeiningablöð um gerð deiliskipulags, breytingar á deiliskipulagi og önnur skipulagsmál er að finna undir Leiðbeiningar og útgáfa.



 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is