| |
FERLIMÁL
Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum skal Skipulagsstofnun fylgjast með og veita upplýsingar um ferlimál fatlaðra. Í skipulagsreglugerð og byggingarreglugerð er að finna lágmarksákvæði og kröfur varðandi hönnun mannvirkja og næsta umhverfis, þannig að allir eigi sem hindrunarminnstan aðgang og möguleika á umferð og dvöl í mannvirkjum. Sveitarstjórnum ber að sjá til þess að þessum kröfum sé framfylgt. Frekari upplýsingar fást hjá Skipulagsstofnun.
Leiðbeiningar um ferlimál
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (Rb) hefur gefið út Rb-blöð þar sem settar eru fram tæknilegar lausnir er varða ferlimál. Rb hefur einnig gefið út handbókina Aðgengi fyrir alla, þar sem settar eru fram leiðbeiningar um hönnun bygginga og umhverfis og framkvæmdir.
Starfshópur um aðgengi fyrir alla
Félagsmálaráðherra skipaði í september 2003 starfshóp um aðgengi fyrir alla, í samræmi við þingsályktun um framkvæmdaáætlun um aðgengi fyrir alla sem Alþingi samþykkti 15. mars 2003.
Starfshópurinn hefur það hlutverk að semja framkvæmdaáætlun sem hefur það markmið að tryggja aðgengi fyrir alla með hliðsjón af meginreglum Sameinuðu þjóðanna um þátttöku fatlaðra til jafns við aðra. Einnig er gert ráð fyrir að hópurinn geri kostnaðaráætlun um verkefnið.
Áhugaverðir tenglar um ferlimál
Erhvervs- og byggestyrelsen í Danmörku www.ebst.dk/
|
|