| |
Auglýsing um skipulag - Árneshreppur
Auglýsing um aðalskipulag Árneshrepps 2005-2025.
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að Aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð, umhverfisskýrsla og skýrslur vegna fornleifaskráningar liggja frammi á skrifstofu Árneshrepps á Norðurfirði frá 9. mars 2010 til 6. apríl 2010. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðunni www.litlihjalli.it.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila skriflega til skrifstofu Árneshrepps á Norðurfirði, merkt aðalskipulag, fyrir 27. apríl 2010. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
9. mars 2010.
Oddviti Árneshrepps,
Oddný S. Þórðardóttir
(innf. 10. mars 2010)
Varnargarður undir Gleiðarhjalla í Ísafjarðarbæ
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að gerð varnargarðs undir Gleiðarhjalla í Ísafjarðarbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 9. apríl 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér
(innf. 9. mars 2010)
Móttökustöð Hringrásar hf., Akureyri
Skipulagsstofnun hefur rtekið ákvörðun um að Móttökustöð Hringrásar hf., á Akureyri skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 6 . apríl 2010.Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni héri
(innf. 4. mars 2010)
Tilmæli til sveitarfélaga - Ekki nægir fyrir sveitarstjórnir að staðfesta fundargerðir án umræðu
Skipulagsstofnun vekur athygli sveitarfélaga á úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 7. sept. 2009, í máli nr. 114/2008 (Aspargrund), en þar segir meðal annars í niðurstöðukafla: "Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er það á valdsviði sveitarstjórnar að ákveða dagsektir til að knýja fram fyrirmæli byggingarfulltrúa eða byggingarnefndar. Í málinu liggur aðeins fyrir tillaga byggingarnefndar til bæjarstjórnar um að beita dagsektum. Hins vegar liggur ekki fyrir að bæjarstjórn hafi tekið ákvörðun um dagsektir í máli þessu og breytir engu þótt hún hafi samþykkt án umræðu fundargerð byggingarnefndar þar sem umrædd tillaga er gerð. Var tillaga byggingarnefndar.....
öll fréttin
(innf. 1. mars 2010)
Auglýsing um skipulag - Keflavíkurflugvöllur - Breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og Varnarmálastofnun Íslands auglýsa hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005 - 2025 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Keflavíkurflugvallar ohf., Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 1. mars 2010 til og með 29. mars 2010. Tillöguna má einnig skoða á vefsíðu Keflavíkurflugvallar ohf., www.kefairport.is. Breytingin felst einkum í því að skipulagssvæði Keflavíkurflugvallar minnkar, sem nemur svæði C í lögum nr. 176/2006 um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli og auglýsingu nr. 38/2007 um að.....
öll fréttin
(innf. 1. mars 2010)
Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar 2. febrúar 2010: Tillögu um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar - austurhluta ásamt umhverfisskýrslu og tillögu að breytingum á mörkum þriggja gildandi deiliskipulagsáætlana í miðbænum. Auglýst er að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar - austurhluta, skv. 1. mgr. 25. gr. og sbr. málsmeðferð 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og umhverfisskýrsla, skv. 1. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Skipulagssvæðið afmarkast að sunnan af Kaupvangsstræti, að norðan af Strandgötu, að vestan af Hafnarstræti og að austan af ströndinni og lóð Hofs. Sett er fram.....
öll fréttin
(innf. 25. febrúar 2010)
Til sveitarstjórna - Kynning samkvæmt 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga
Leiðbeiningar Skipulagsstofnunar um hvað telst fullnægjandi kynning skipulagstillögu samkvæmt ákvæðinu: 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Sjá bréf stofnunarinnar
(innf. 23. febrúar 2010)
Skipulagsvefsjá
Skipulagsstofnun hefur opnað svokallaða Skipulagsvefsjá sem er rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana sem varðveittar eru hjá stofnuninni. Með tímanum verður hægt að nálgast þar allt deili- og aðalskipulag sem samþykkt og staðfest hefur verið samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og stofnunin hefur fengið til varðveislu. Í nokkrum tilfellum er einnig hægt að nálgast skipulagsáætlanir samkvæmt eldri lögum. Nánari leiðbeiningar eru að finna í Skipulagsvefsjánni. Aðeins er gert ráð fyrir að birta í Skipulagsvefsjánni skipulagsáætlanir sem sannanlega hafa öðlast gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Skipulagsstofnun setur þó fyrirvara um að allar skipulagsáætlanir frá tímabilinu 1997 - 2005 og sem.....
öll fréttin
(innf. 23. febrúar 2010)
Rannsóknaboranir í Gjástykki, Þingeyjarsveit
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Helstu niðurstöður eru þær að fyrirhugaðar framkvæmdir við rannsóknaboranir komi til með að hafa nokkuð neikvæð og varanleg áhrif á hraun frá Kröflueldum á afmörkuðu svæði. Á framkvæmdatíma verða nokkuð neikvæð áhrif á svæðið sem hluta af svæði sem skilgreina má sem víðerni. Þá verða sjónræn áhrif fyrirhugaðra framkvæmda nokkuð neikvæð fyrir þá ferðamenn sem sækja inn á svæðið til útivistar, auk þess sem hávaði mun berast frá holum í blæstri. Að öðru leyti er ljóst að framkvæmdasvæðið er ekki umfangsmikið og ásýndarbreytingar vegna borteigs ná.....
öll fréttin
(innf. 19. febrúar 2010)
Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Hornafjörður
Lambleiksstaðir - svæði fyrir verslun og þjónustu vegna uppbyggingar ferðaþjónustu Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, skv.1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin felst, í meginatriðum, í eftirfarandi: Verslunar- og þjónustusvæði tekur við af landbúnaðarsvæði á u.þ.b. 5 ha svæði norðan við Lambleiksstaði. Breytingartillagan, ásamt greinargerð, verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, á venjulegum opnunartíma, frá og með mánudeginum 15. febrúar 2010, til og með mánudagsins 22. mars 2010. Breytingartillagan, ásamt greinargerð, er einnig til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins,www.hornafjordur.is. Þeim, sem telja sig eiga.....
öll fréttin
(innf. 17. febrúar 2010)
Auglýsing um skipulag - Reykhólahreppur
Breyting á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 og breyting á deiliskipulagi Bjarkarlunds og nýtt deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Hafrahlíðar. Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 14. janúar 2010 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulag Reykhólahrepps 2006-2018 skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin er gerð fyrir nýtt íbúðasvæði í Bjarkalundi og smábátahöfn við Innstapoll í Flatey. Jafnframt eru auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögur. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Bjarkarlund skv. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Hafrahlíðar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997......
öll fréttin
(innf. 15. febrúar 2010)
Sjóvarnargarður og efnistaka á Siglunesi í Fjallabyggð
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að sjóvarnargarður og efnistaka á Siglunesi í Fjallabyggð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 2. mars. 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.
(innf. 29. janúar 2010)
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul
Skipulagstofnun hefur tekið ákvörðun um að verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul 2010-2020 skuli ekki háð ákvæðum laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar, www.skipulag.is.
Heimilt er að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 29. febrúar 2010.
Sjá nánar ákvörðun Skipulagsstofnunar
(innf. 28. janúar 2010)
Auglýsing um skipulagsmál - Uppsveitir Árnessýslu og Flóahreppur
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunnamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi.
Sjá nánar auglýsingu skipulagsfulltrúa
(innf. 21. janúar 2010)
Viðmið og umhverfisverndarmarkmið.
Árið 2008 tók Skipulagsstofnun saman lista yfir viðmið og umhverfisverndarmarkmið sem þarf að taka mið af þegar metin eru áhrif framkvæmda eða áætlana á umhverfið.
Slíkt yfirlit getur aldrei verið tæmandi og þarf að endurskoða með reglulegu millibili, þar sem tiltekin viðmið geta breyst og önnur bæst við með tilkomu nýrra stefnuskjala (t.d. ný lög og reglugerðir). Skipulagsstofnun fór yfir listann í lok árs 2009 og birtir hér með endurskoðað yfirlit. Leiðbeiningar um viðmið umhverfisáhrifa
(innf. 15. janúar 2010)
Kynning á frummatsskýrslu: Urðunarstaður við Sölvabakka, Blönduósbæ
Mánudaginn 11. janúar 2010 kl 17:00 verður haldinn almennur kynningarfundur að Hótel Blönduósi um nýjan urðunarstað að Sölvabakka. Um er að ræða kynningu á umhverfismati framkvæmda, uppbyggingu og rekstur urðunarstaðarins. Einnig verður kynnt efni frá Skipulagsstofnun um ferli umhverfismats. Til fundarins boða Norðurá bs. og Blönduósbær.
Á fundinum verður haldin tvö erindi:
Staða sorpeyðingarmála - Ágúst Þór Bragason, yfirmaður tæknideildar Blönduósbæjar .
Uppbygging og rekstur urðunarstaðarins að Sölvabakka, niðurstöður umhverfismats - Gunnar Svavarsson, verkfræðingur, Eflu verkfræðistofu.
(innf. 8. janúar 2010)
Efnistaka vestan Ölfusáróss, Sveitarfélaginu Ölfusi
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum efnistöku vestan Ölfusáróss, í landi Hrauns í Ölfusi, samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Helstu niðurstöður Skipulagsstofnunar eru þær að neikvæð umhverfisáhrif efnistökunnar felist helst í varanlegri röskun í Leitahrauni vegna grjótnáms, en hraunið nýtur verndar skv. lögum um náttúruvernd. Hins vegar liggur fyrir álit sérfræðings um að ekki sé tilefni til þess að friða hraunið, þar sem grjótnmám fer fram og að áætluð stærð efnistökusvæðisins verður lítið miðað við flatarmál Leitahrauns alls. Ummerki eftir grjótnámið verða því á takmörkuðum hluta hraunsins. Skipulagsstofnun telur því að neikvæð áhrif efnistökunnar á hraunið verði.....
öll fréttin
(innf. 7. janúar 2010)
Fundað um umhverfisáhrif Suðurlandsvegar á fimmtudagskvöld
Næstkomandi fimmtudag, þann 7. janúar, stendur Vegagerðin fyrir kynningarfundi um umhverfisáhrif Suðurlandsvegar frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss. Fundurinn, sem er öllum opinn, verður haldinn á Hótel Selfossi og hefst kl. 20. Þeir sem áhuga hafa á framkvæmdinni og umhverfisáhrifum hennar eru eindregið hvattir til að mæta. Skipulagsstofnun minnir jafnframt á að frestur almennings til að gera athugasemdir er til 29. janúar 2010. Athugasemdir skulu sendar Skipulagsstofnun skriflega en þær mega berast í pósti, símbréfi eða tölvupósti til stofnunarinnar.
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
fax. 5954165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is
(innf. 5. janúar 2010)
Þorskeldi Álfsfells ehf., allt að 900 tonn á ári, í Skutulsfirði við Ísafjarðarbæ
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að þorskeldi Álfsfells ehf., allt að 900 tonn á ári, í Skutulsfirði við Ísafjarðarbæ , skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 30. janúar 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.
(innf. 28. desember 2009)
Auglýsing um skipulag - Mýrdalshreppur
Tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum. Skipulagsgögn eru skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdrættir og umhverfisskýrsla. Ennfremur eru kynntar athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillöguna sbr. 3. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga. Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17, Vík og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps:www.vik.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir.....
öll fréttin
(innf. 22. desember 2009)
Efnistaka í Stóru-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit
Umís f.h. Hvalfjarðarsveitar hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um efnistöku í Stóru-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Frummatsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 18. desember 2009 til 5. febrúar 2010 á skrifstofum Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. febrúar 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Frummatsskýrsluna má einnig sjá hér.
(innf. 18. desember 2009)
Urðunarstaður og efnistaka við Sölvabakka, Blönduósbæ
EFLA hf., f.h. Norðurár bs., hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um urðunarstað og efnistöku við Sölvabakka, Blönduósbæ. Frumatsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 18. destember 2009 til 29. janúar 2010 á eftirtöldum stöðum: Á Héraðsbókasafni Austur-Húnavatnssýslu, bæjarskrifstofu Blönduósbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrsluna má einnig sjá hér. Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. janúar 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Stefnt er að því að halda kynningarfund um framkvæmdina og umhverfisáhrif hennar í byrjun næsta árs. Tilkynnt verður um fundinn.....
öll fréttin
(innf. 17. desember 2009)
Framleiðsla á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, Tálknafjarðarhreppur ; Vesturbyggð
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framleiðsla á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 14. janúar 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.
(innf. 10. desember 2009)
Suðurlandsvegur, frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss í Hveragerði, Sveitarfélaginu Ölfus, Sveitarfélaginu Árborg og Flóahreppi. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 11. desember 2009 til 29. janúar 2010 á Bókasafninu í Hveragerði og Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi. Einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Eflu: www.efla.is og Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is. Hér er tengill á frummatsskýrsluna. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29......
öll fréttin
(innf. 10. desember 2009)
Í kjölfar dóms Hæstaréttar um Teigsskóg
Að gefnu tilefni vill Skipulagsstofnun vekja athygli á dómi Hæstaréttar frá 22. október 2009 í máli 671/2008, en þar komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að umhverfisráðherra hefði verið óheimilt að taka tillit til umferðaröryggis í úrskurði sínum frá 5. janúar 2007 um mat á umhverfisáhrifum þeirrar framkvæmdar er til umfjöllunar var. Þó svo að dómurinn snúist um ágreiningsefni á vegarkafla á Vestfjarðavegi er ljóst að um stefnumarkandi áhrif er að ræða sem nauðsynlegt er að taka mið af við aðrar vegaframkvæmdir. Í dóminum segir meðal annars: "Tilhögun framkvæmdar ... hvort sem farið væri eftir leið B eða D sem mál.....
öll fréttin
(innf. 30. nóvember 2009)
Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, ásamt umhverfisskýrslu, samþykkta í bæjarstjórn 3. nóvember 2009. Í breytingunni felst lenging syðri hafnarkants um 120 m og þar með stækkun svæðis 1.15.1 H og landfyllingar á sama svæði um 0,5 ha. Með lengingu kantsins verður mögulegt að taka á móti stærri skipum í höfninni. Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 25. nóvember 2009 til 6. janúar 2010 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér.....
öll fréttin
(innf. 26. nóvember 2009)
Auglýsing um skipulag - Mosfellsbær
Við Skarhólabraut: Tillögur að deiliskipulagi og breytingum á aðalskipulagi. Mosfellsbær auglýsir hérmeð skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi lóðar fyrir slökkvi- og lögreglustöð norðan Skarhólabrautar, næst gatnamótum við Vesturlandsveg. Lóðin er um 16.700 m² að stærð, með tvær tengingar við Skarhólabraut. Meginbyggingin er tveggja hæða, staðsett norðan til á lóðinni, með aðstöðu slökkviliðs í austurenda og fyrir miðju en lögreglustöð í vesturenda. Bílastæði og athafnasvæði verða sunnan hússins. Austast á lóðinni er gert ráð fyrir tækjageymslu í stakri byggingu. Hámarksnýtingarhlutfall er 0,4. Samhliða ofangreindri tillögu að deiliskipulagi er einnig auglýst skv. 1. mgr. 21. gr......
öll fréttin
(innf. 25. nóvember 2009)
Auglýsing um skipulag - Grindavík
Auglýsing um breytingar á aðalskipulagi Grindavíkur 2000 -2020 og tillögu að deiliskipulagi. Auglýstar eru tillögur að þremur breytingum á aðalskipulagi auk tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð ásamt umhverfisskýrslum. Aðalskipulagstillögurnar er auglýstar með vísan til 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Deiliskipulagstillagan er auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Skipulagsuppdrættir, greinargerðir og umhverfisskýrslur munu liggja frammi til kynningar á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, í Grindavík frá 19. nóvember til 24. desember 2009. Enn fremur eru tillögurnar aðgengilegar á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og til sýnis hjá Skipulagstofnun, Laugavegi 166,.....
öll fréttin
(innf. 19. nóvember 2009)
Kröfluvirkjun II. Allt að 150 MW jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um tillögu Landsvirkjunar að matsáætlun Kröfluvirkjunar II, allt að 150 MW jarðhitavirkjunar við Kröflu í Skútustaðahreppi. Fallist er á tillöguna með athugasemdum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér
(innf. 9. nóvember 2009)
Álver á Bakka, virkjun Kröflu og Þeistareykja ásamt háspennulínum. Ákvörðun um tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um tillögu Alcoa, Landsnets, Landsvirkjunar Power og Þeistareykja ehf. Álver á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík. Sameiginlegt mat. Fallist er á tillöguna með athugasemdum. Ákvörðunina má sjá í heild sinni hér.
(innf. 9. nóvember 2009)
|