Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hvað er skipulagsgjald?
  Skipulagsgjald er innheimt af nýjum mannvirkjum til að greiða kostnað við gerð skipulagsáætlana. Gjaldið nemur 0,3% af brunabótamati nýbygginga eða 0,3% af stofnverði mannvirkja sem ekki eru virt til brunabóta. Sýslumaður innheimtir gjaldið nema í Reykjavík þar sem tollstjóri annast innheimtuna.

Skipulagsgjald rennur í Skipulagssjóð sem er í vörslu Skipulagsstofnunar og annast stofnunin greiðslur úr honum.

Tvennskonar fyrirkomulag er á greiðslu kostnaðar við gerð aðalskipulags. Nokkur stærri sveitarfélög fá árlega greiddan helming innheimtra skipulagsgjalda í sveitarfélaginu úr Skipulagssjóði til að standa straum af kostnaði við aðalskipulagsgerð. Önnur sveitarfélög í landinu geta fengið greiddan allt að helmingi kostnaðar við gerð aðalskipulags úr sjóðnum.

Sveitarfélag þarf að sækja sérstaklega um greiðslu úr Skipulagssjóði til Skipulagsstofnunar á grundvelli verk- og kostnaðaráætlunar um gerð aðalskipulags.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is