Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 

MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM FRAMKVÆMDA
Lögum um mat á umhverfisáhrifum er ætlað að tryggja að umhverfisáhrif þeirra framkvæmda, sem kunna að hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér, hafi verið metin áður en leyfi er veitt fyrir þeim. Matinu er einnig ætlað draga eins og kostur er úr neikvæðum umhverfisáhrifum framkvæmda og stuðla að samvinnu þeirra aðila sem hafa hagsmuna að gæta eða láta sig málið varða. Ennfremur að kynna umhverfisáhrif framkvæmda fyrir almenningi og stuðla að því að almenningur komi að athugasemdum og upplýsingum áður en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir.

Hlutverk Skipulagsstofnunar varðandi mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
- Leiðbeiningar, þróun og eftirliti.
- Ákvarðanir um matsskyldu framkvæmda í 2. viðauka við lög og reglugerð um mat á umhverfisáhrifum.
- Kynning á tillögum framkvæmdaraðila að matsáætlunum og ákvörðunum um matsáætlanir.
- Kynning á frummatsskýrslum framkvæmdaraðila og áliti stofnunarinnar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur gefið út leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

Upplýsingar um framkvæmdir sem hlotið hafa umfjöllun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum
Á heimasíðu Skipulagsstofnunar er að finna upplýsingar um allar framkvæmdir sem hafa komið til afgreiðslu vegna ákvörðunar um matsskyldu og um allar framkvæmdir sem farið hafa í mat á umhverfisáhrifum.

Hér að neðan eru upplýsingar um úrskurði vegna framkvæmda sem voru teknar til athugunar hjá Skipulagsstofnun á tímabilinu 1994-2000 og 2000-2006.

Úrskurðir 2000 - 2006
Úrskurðir 1994 - 2000


 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is