| |
SKIPULAGS- OG BYGGINGARFULLTRÚAR
Í 7. gr. skipulags- og byggingarlaga er kveðið á um að í hverju sveitarfélagi skuli starfa bæði byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúi. Sveitarstjórn getur falið byggingarfulltrúa að annast einnig skipulagsmál og nefnist hann þá skipulags- og byggingarfulltrúi. Skipulagsstofnun gefur út lista yfir þá sem sinna starfi byggingar- og skipulagsfulltrúa og/eða hafa rétt til að sinna skipulagsgerð. Listarnir eru sendir sveitarstjórnum tvisvar ári, til yfirferðar og upplýsingar.
Menntun og reynsla skipulagsfulltrúa og annarra sem sinna skipulagsgerð
Í gr. 2.7 í skipulagsreglugerð eru ákvæði um tilskilda menntun og reynslu skipulagsfulltrúa sveitarfélaga og annarra þeirra sem falin er gerð skipulagsáætlana. Áður en sveitarstjórn ræður skipulagsfulltrúa skal hún leita umsagnar Skipulagsstofnunar. Eftirtaldir hafa rétt til að starfa sem skipulagsfulltrúar og vinna að gerð skipulagsáætlana:
1. Skipulagsfræðingar
2. Arkitektar, byggingarfræðingar, innanhússarkitektar, landslagsarkitektar, rafiðnfræðingar, tæknifræðingar og verkfræðingar, sem hlotið hafa heimild til þeirra starfsheita samkvæmt lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum og hafa sérhæft sig á sviði skipulagsmála í námi eða með starfsreynslu. Með sérhæfingu í námi og/eða starfsreynslu er átt við að sá sem óskar að verða skráður á lista hafi lagt stund á svæðis-, aðal- eða deiliskipulag í námi og/eða hafi unnið við það í a.m.k. 2 ár.
Menntun og reynsla byggingarfulltrúa
Í 48. og 49. gr. Skipulags- og byggingarlaga er kveðið á um menntun og reynslu byggingarfulltrúa sveitarfélaga. Rétt til að starfa sem byggingarfulltrúar hafa arkitektar, byggingarfræðingar, verkfræðingar, rafiðnfræðingar, innanhússarkitektar eða landslagsarkitektar og hlotið hafa löggildingu umhverfisráðherra samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 m.s.br. og löggildingu iðnaðarráðherra samkvæmt lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum nr. 8/1996. Sveitarstjórnir skulu senda Skipulagsstofnun tilkynningu um ráðningu byggingarfulltrúa og skulu þeir uppfylla skilyrði sem löggiltir mannvirkjahönnuðir.
Þeir sem gegndu störfum byggingarfulltrúa við gildistöku skipulags- og byggingarlaga 1. janúar 1998, hafa rétt til að gegna starfi sínu áfram, þó þeir fullnægi ekki framgreindum skilyrðum.
Listar yfir skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa
Skipulagsstofnun gefur út lista yfir skipulagsfulltrúa sveitarfélaga og þá sem vinna við gerð skipulagsáætlana. Hlutverk listanna er að staðfesta hverjir hafi tilskilin réttindi og auðvelda þannig val sveitarfélaga á starfsmönnum og ráðgjöfum vegna skipulags. Listarnir eru sendir sveitarstjórnum tvisvar á ári. Þeir sem óska eftir því að verða skráðir á lista þurfa að senda stofnuninni ósk þar um ásamt upplýsingum um menntun og starfsreynslu. Listarnir útiloka því ekki þá sem hafa tilskilda menntun og reynslu til framgreindra starfa en hafa ekki verið skráðir. Útbúið hefur verið sérstakt eyðublað sem æskilegt er að sé notað þegar sótt er um.
Listi yfir byggingarfulltrúa
Sveitarstjórnir skulu tilkynna ráðningu byggingarfulltrúa til Skipulagsstofnunar sbr. 7. gr. skipulags- og byggingarlaga. Stofnunin gefur út lista yfir þá sem starfa sem byggingarfulltrúar og uppfylla skilyrði skipulags- og byggingarlaga sem slíkir. Til að byggingarfulltrúar séu skráðir á listann þarf sveitarstjórn senda stofnuninni tilkynningu þar um ásamt upplýsingum um menntun, vottorð um löggildingu sem mannvirkjahönnuðir eða starfsreynslu þar sem það á við. Sérstakt eyðublað hefur verið útbúið vegna slíkrar tilkynningar. Listinn er sendur sveitarstjórnum til yfirferðar tvisvar á ári.
Listi yfir skipulagsfulltrúa sveitarfélaga
Listi yfir þá sem réttindi hafa til að sinna skipulagsgerð
Listi yfir byggingarfulltrúa sveitarfélaga
|
|