| |
Leiðbeiningar og útgáfa >> Skýrslur um rannsóknir og þróun
SKÝRSLUR UM RANNSÓKNIR OG ÞRÓUN
Framtidens Nordiska Stad (útg. 2009)
Planering och genomförande för framgångsrik och hållbar stadsutveckling mellan Göteborgs- och Lissabonstrategierna Resultat av ett samnordiskt projekt (útg. 2006)
Byggingareftirlitið - könnun á störfum og starfsaðstöðu byggingarfulltrúa (útg. 2008)
Út er komin skýrsla með niðurstöðum könnunar sem Skipulagsstofnun og Brunamálastofnun hafa látið vinna í samstarfi við Félag byggingarfulltrúa. Benedikt Jónsson verkfræðingur vann könnunina þar sem skoðuð er starfsemi byggingareftirlitsins, borin saman vinnuferli hinna ýmsu embætta byggingarfulltrúa, starfsaðstaða, álit byggingarfulltrúa á hönnunargögnum og byggingarframkvæmdum, skoðuð samskipti eftirlitsaðila, sveitarstjórna, hönnuða og framkvæmdaraðila svo eitthvað sé nefnt og skoðað hvernig styrkja megi eftirlitið og gera það skilvirkara.
Frá árinu 2002 hefur við smíði frumvarps til mannvirkjalaga verið gert ráð fyrir að byggingamál færðust frá Skipulagsstofnun til nýrrar Byggingarstofnunar, en frumvarpið hefur ekki orðið að lögum á þessum tíma. Lengi hefur verið ljóst að framkvæmd byggingareftirlits er breytileg frá einu embætti byggingarfulltrúa til annars en gögn þar að lútandi hafa ekki legið fyrir fyrr en nú. Gert er ráð fyrir að niðurstöðurnar nýtist við undirbúning Byggingarstofnunar verði hún að lögum. Skýrsluna má nálgast í útprentuðu formi hjá Skipulagsstofnun gegn vægu gjaldi eða með því að hlaða henni niður af vef Skipulagsstofnunnar Byggingareftirlitið-skýrsla
Úttekt á framkvæmd matsáætlunarstigsins við mat á umhverfisáhrifum (útg. 2006)
Skipulagsstofnun ásamt Þekkingarsetri Þingeyinga (ÞÞ) í samvinnu við Vegagerðina hafa lokið við verkefnið „Úttekt á framkvæmd matsáætlunarstigsins við mat á umhverfisáhrifum“ sem hlaut 1.700.000 kr styrk af tilraunafé Vegagerðarinnar vorið 2005.
Niðurstöður verkefnisins eru birtar í meðfylgjandi skýrslu sem ber heitið „Mat á umhverfisáhrifum - Innleiðing matsáætlana - Gæði og árangur“. Þessi rannsókn hefur öðru fremur snúið að því að kanna hvaða áhrif innleiðing matsáætlana árið 2000 hafði á málsmeðferð, skilvirkni, gæði og kostnað matsferlisins og hvernig til hefur tekist við framkvæmd þessa. Skýrsluna má nálgast hér.
SKIPULAGSGERÐ Á LANDSVÍSU Á NORÐURLÖNDUM (útg. 2004).
skýrsla, forsíða
UMHVERFISMAT ÁÆTLANA - Forsendur innleiðingar tilskipunar Evrópusambandsins (útg. 2003).
skýrsla, forsíða
Guidance on Strategic Environmental Assessment (útg. 2002).
Við vinnslu leiðbeininga um gerð aðalskipulags fékk Skipulagsstofnun Alta ehf. og Riki Thérivel til að vinna með sér að leiðbeiningum um umhverfismat aðalskipulagstillagna. Í þessari skýrslu ráðgjafanna er gerð grein fyrir niðurstöðum þeirrar vinnu.
skýrsla
|