Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
SÝNINGARRÝMI SKIPULAGSSTOFNUNAR
Laugavegi 166, Reykjavík, opið mánudaga-föstudaga kl. 8-16

Í sýningarrými Skipulagsstofnunar er hægt að kynna sér þær framkvæmdir sem eru í kynningu hverju sinni vegna mats á umhverfisáhrifum (tillögur að matsáætlunum og matsskýrslur) og aðal- og svæðisskipulagstillögur sem sveitarfélög og samvinnunefndir eru með í kynningu hverju sinni. Í einstaka tilviki eru deiliskipulagstillögur sveitarfélaga einnig kynntar hjá Skipulagsstofnun.

Auglýsing um skipulag - Árneshreppur
Auglýsing um aðalskipulag Árneshrepps 2005-2025.
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að Aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð, umhverfisskýrsla og skýrslur vegna fornleifaskráningar liggja frammi á skrifstofu Árneshrepps á Norðurfirði frá 9. mars 2010 til 6. apríl 2010. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðunni www.litlihjalli.it.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila skriflega til skrifstofu Árneshrepps á Norðurfirði, merkt aðalskipulag, fyrir 27. apríl 2010. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

9. mars 2010.
Oddviti Árneshrepps,

Oddný S. Þórðardóttir


Auglýsing um skipulag - Keflavíkurflugvöllur
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og Varnarmálastofnun Íslands auglýsa hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005 - 2025 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Keflavíkurflugvallar ohf., Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 1. mars 2010 til og með 29. mars 2010.
Tillöguna má einnig skoða á vefsíðu Keflavíkurflugvallar ohf., www.kefairport.is.
Breytingin felst einkum í því að skipulagssvæði Keflavíkurflugvallar minnkar, sem nemur svæði C í lögum nr. 176/2006 um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli og auglýsingu nr. 38/2007 um að hluti varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli skuli tekinn í borgaraleg not, að því marki sem það er innan sveitarfélagamarka Reykjanesbæjar. Einnig er sýnd lega háspennustrengs, sem heimilt verður að leggja meðfram Reykjanesbraut á norðausturjaðri svæðisins.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 12. apríl 2010. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Keflavíkurflugvallar ohf., Flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.

Keflavíkurflugvelli, 24. febrúar 2010.

Guðmundur Björnsson

formaður skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar.

Ellisif Tinna Víðisdóttir

forstjóri Varnarmálastofnunar Íslands.



Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar 2. febrúar 2010:
Tillögu um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar - austurhluta ásamt umhverfisskýrslu og tillögu að breytingum á mörkum þriggja gildandi deiliskipulagsáætlana í miðbænum.
Auglýst er að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar - austurhluta, skv. 1. mgr. 25. gr. og sbr. málsmeðferð 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og umhverfisskýrsla, skv. 1. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skipulagssvæðið afmarkast að sunnan af Kaupvangss træti, að norðan af Strandgötu, að vestan af Hafnarstræti og að austan af ströndinni og lóð Hofs. Sett er fram stefna um einkenni byggðar, landnotkun, samgöngur, tengsl við sjóinn og mótun gatna, gönguleiðir og torgsvæði. Gert er ráð fyrir byggingum á bílastæðum milli Skipagötu og Glerárgötu, fjölgun íbúða og atvinnuhúsnæðis. Bílastæðum verður komið fyrir í bílakjöllurum. Tengsl miðbæjarins og Pollsins eru endurvakin með síki sem liggja mun þvert á helstu miðbæjargötur og myndað meðfram því almenningsrými sem liggur frá sjó og að Hafnarstræti.
Samhliða er auglýst, sbr. fyrrgreindar málsgreinar skipulags- og byggingarlaga, tillaga að breytingum á mörkum þriggja gildandi deiliskipulagsáætlana í miðbænum, sem eru:
  • Torfunef - Strandgata, samþykkt 8. nóvember 2005.
  • Miðbær Akureyrar. Deiliskipulag norðurhluta, samþykkt 17. september 1996.
  • Akureyri, deiliskipulag miðbæjar, samþykkt 6. maí 1981.

Tillögurnar, uppdrættir ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu, liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 5. febrúar til 31. mars 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér ofangreint og gert við það athugasemdir. Sömu gögn eru einnig birt á heimasíðunni:www.akureyri.is/midbaer.
Frestur til að senda inn athugasemdir er lengdur frá áður birtri auglýsingu, til 31. mars 2010.
Athugasemdum við ofangreind skipulagsgögn og umhverfisskýrslu, má skila á tvennan hátt:
  • Skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
  • Í tölvupósti á póstfangið annabraga@akureyri.is Nauðsynlegt er að nafn, kennitala og heimilisfang sendanda komi fram í tölvupóstinum til að athugasemdir verði teknar gildar.
  • Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

17. febrúar 2010.
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.



Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Hornafjörður
Lambleiksstaðir - svæði fyrir verslun og þjónustu vegna uppbyggingar ferðaþjónustu
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, skv.1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingin felst, í meginatriðum, í eftirfarandi: Verslunar- og þjónustusvæði tekur við af landbúnaðarsvæði á u.þ.b. 5 ha svæði norðan við Lambleiksstaði.

Breytingartillagan, ásamt greinargerð, verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, á venjulegum opnunartíma, frá og með mánudeginum 15. febrúar 2010, til og með mánudagsins 22. mars 2010. Breytingartillagan, ásamt greinargerð, er einnig til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins,www.hornafjordur.is.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins. 29. mars 2010 og skulu þær vera skriflegar. Athugasemdum skal skilað á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn.
Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests, telst henni samþykkur.

F. h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 12. febrúar, 2010.

Haukur Ingi Einarsson
framkvæmdastjóritæknisviðs



Auglýsing um skipulag - Reykhólahreppur
Breyting á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 og breyting á deiliskipulagi Bjarkarlunds og nýtt deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Hafrahlíðar.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 14. janúar 2010 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulag Reykhólahrepps 2006-2018 skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Breytingin er gerð fyrir nýtt íbúðasvæði í Bjarkalundi og smábátahöfn við Innstapoll í Flatey.
Jafnframt eru auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögur.

  • Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Bjarkarlund skv. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
  • Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Hafrahlíðar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Skipulagsuppdrættir og greinargerðir munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 11. febrúar 2010 til 11. mars 2010. Ennfremur verða tillögunar til sýnis á heimasíðu Reykhólahrepps; reykholar.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar.
Athugasemdum skal skila til skrifstofu Reykhólhrepps fyrir 26.mars 2010 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Reykhólum, 5. febrúar 2010

Bogi Kristinsson Magnusen
s
kipulags og byggingarfulltrúi



AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunnamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi

Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga eru hér kynntar breytingar á aðalskipulagi í Bláskógabyggð og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

1. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012, hesthúsahverfi á Laugarvatni.
Í breytingunni felst tilfærsla og stækkun á fyrirhuguðu hesthúsahverfi norðaustan Laugarvatns sem verður til þess að skilgrein opið svæði til sérstakra nota kemur í stað um 4 ha íbúðarsvæðis og um 1,5 ha verslunar- og þjónustusvæðis. Ástæða breytingarinnar eru breyttar forsendur varðandi uppbyggingu hesthúsasvæðisins.

2. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða-og Gnúpverjahrepps 2004-2016, spilda úr landi Álfsstaða.
Í breytingunni felst að um 7 ha svæði innan 44,8 landsspildu sem kallast Hulduheimar breytist úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð. Ástæða breytingarinnar eru áform um að reisa nokkur frístundahús á svæðinu, en meginhluti landsins verður þó áfram nýtt sem landbúnaðarland. Svæðið er við þjóðveg 324 rétt sunnan Álfsstaða

Áður en tillögurnar verða teknar til formlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn verða þær til kynningar í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga á skrifstofu sveitarfélaganna og á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Dalbraut 12, Laugarvatni, frá fimmtudeginum 21. janúar til mánudagsins 1. febrúar 2010. Þá verður einnig hægt að nálgast tillögurnar á slóðinni. http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/. Að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnar munu breytingartillögurnar fara í formlegt kynningarferli þar sem þær verður auglýstar í a.m.k. 6 vikur þar sem þeim sem telja sig hafa hagsmuna að gæta gefst kostur á að koma með athugasemdir við tillögurnar.

Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:

3. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Einiholts 3.
Í breytingunni felst að um 120 ha svæði úr landi Einiholts 3, sem liggur austan og norðan við áður skipulagt frístundabyggðarsvæði, breytist úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð.

4. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 við Kotstún á Laugarvatni.
Í breytingunni felst að um 8,7 h svæði sem í gildandi skipulagi er skilgreint sem landbúnaðarsvæði breytist í svæði með blandaða landnotkun verslunar- og þjónustusvæðis og athafnasvæðis. Þá er einnig gert ráð fyrir að íbúðarsvæði sunnan við Menntaskóla minnki úr 12,1 ha í 8,1 ha til samræmis við gildandi deiliskipulag.

5. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 í landi Austureyjar 2.
Í breytingunni felst að um 3,2 ha svæði nyrst á Skógarnesi breytist úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð og jafnframt er gert ráð fyrir að jafnstórt svæði við Krossholtsmýri breytist úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði.

6. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Þingvallasveitar 2004-2016 í landi Mjóaness.
Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir að um 2 ha svæði við Mjóuvík í landi Mjóaness við Þingvallavatn breytist úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð. Gert er ráð fyrir einni frístundahúsalóð á svæðinu.

7. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hraungerðishrepps 2003-2015, Bitra í Flóahreppi.
Í breytingunni felst að um 5 ha svæði í landi Bitru breytist í blandaða landnotkun þjónustusvæðis og svæðis fyrir verslun- og þjónustu.Fyrirhugað er starfrækja fangelsi í húsi sem fyrir er á svæðinu auk þess sem möguleiki verður á rekstri gisti/veitingaþjónustu innan svæðisins.

8. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hraungerðishrepps 2003-2015, Versalir, Flóahreppi.
Í breytingunni felst að 9,6 ha svæði vestan við Langholtsveg breytist úr svæði fyrir frístundabyggð í landbúnaðarsvæði. Landsspildan er lögbýli og er ráðgert að nýta landið undir landbúnaðarstarfsemi í stað frístundabyggðar.

Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur:

9. Austurey II í Bláskógabyggð. Deiliskipulag frístundabyggðar.
Tillaga að deiliskipulagi rúmlega 3 ha svæðis fyrir frístundabyggð nyrst á Austureyjarnesi í landi Austureyjar II. Á svæðinu er gert ráð fyrir 6 lóðum á bilinu 0,5 – 0,75 ha að stærð þar sem heimilt verður að reisa allt að 120 fm frístundahús og allt að 30 fm aukahús.

10. Leynir í Bláskógabyggð. Deiliskipulag fyrir gróðurhús.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir gróðurhús ásamt tilheyrandi byggingum í landi Leynis við Böðmóðsstaði. Gert er ráð fyrir allt að 4.000 fm gróðurhúsi, 300 fm uppeldisstöð og 150 fm pökkunarhúsi.

11. Kiðjaberg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Endurskoðun deiliskipulags fyrir frístundabyggð.
Tillaga að endurskoðun deiliskipulags fyrir jörðina Kiðjaberg. Deiliskipulagið er sett fram í greinargerð, á yfirlitsuppdrætti í mkv. 1:5.000 auk 8 uppdrátta í mkv. 1:2.000. Samkvæmt gildandi skipulagi eru 136 frístundahúsalóðir innan svæðisins en með nýju skipulagi er lóðunum fjölgað um 55 og verða því 190 í heild. Þá er gert ráð fyrir stækkun á golfskála auk annarra minni breytinga. Við gildistöku nýs deiliskipulags mun eldra deiliskipulag svæðisins falla úr gildi.

12. Nesjar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Rofabær, deiliskipulag frístundabyggðar
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Nesja, svæði sem kallast Rofabær. Um er að ræða svæði vestan Grafningsvegar og er þar gert ráð fyrir fjórum lóðum sem eru á bilinu 1 til 2,3 ha að stærð. Á hverri lóð verður heimilt að reisa 50 – 300 fm frístundahús og allt að 40 fm aukahús.

13. Ölvisholt í Flóahreppi. Deiliskipulag nýbýlis, Litla-Holt.
Tillaga að deiliskipulagi 34,4 ha spildu úr landi Ölvisholts lnr. 207872 sem liggur vestan við Ölvisholtsveg rétt norðan við bæinn Miklholtshelli. Á landinu verður stofnað nýtt lögbýli sem kallast Litlaholt og samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að reisa þar íbúðarhús, bílgeymslu og skemmu.

14. Skúfslækur í Flóahreppi. Deiliskipulag 10 ha landbúnaðarlóðar.
Tillaga að deiliskipulagi 10 ha spildu úr landi Skúfslækjar, landnr. í 166383. Spildan er vestan þjóðvegar nr. 308 sunnan við land Skúfslækjar 2. Heimilt verður að reisa allt að 500 fm íbúðarhús og 1.000 fm hesthús á byggingarreit sem er í austurhluta spildunnar, næst vegi.

Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar:

15. Austurey í Bláskógabyggð. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðarinnar Skógarnes.
Í breytingunni felst að deiliskipulagssvæði frístundabyggðarinnar Skógarnes stækkar til norðurs yfir aðliggjandi 11.897 fm frístundahúsalóð (landnr. 167705). Þá er gert ráð fyrir byggingarreitum fyrir 5 ný frístundahús auk þess sem gert er ráð fyrir stækkun tveggja snyrtinga.

16. Fell í Bláskógabyggð. Breyting á skipulagsskilmálum Holtahverfis.
Í breytingunni felst að ákvæði skilmála varðandi þakhalla breytist á þann veg að í stað þess að miðað sé við þakhalla á bilinu 15 – 45 gráður, verður heimilt að reisa hús með 0 – 45 gráðu þakhalla.

17. Leynir í Bláskógabyggð. Breyting á skilmálum frístundabyggðarinnar Köldukinn úr landi Leynis.
Í breytingunni felst að skilmálar frístundabyggðarinnar Köldukinn úr landi Leynis breytast á þann veg að byggingarmagn á hverri lóð miðast við nýtingarhlutfallið 0.03, þar af má aukahús vera 30 fm. Samkvæmt gildandi skilmálum mega frístundahúsin vera allt að 120 fm. Þá er gert ráð fyrir að hámarksmænishæð frá gólfplötu verði 6m í stað 5m.

18. Mjóanes í Bláskógabyggð. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar.
Í breytingunni felst að bætt er við 2 ha lóð (nr. 20) á svæði við Mjóvík án þess að gerð sé breyting á skilmálum deiliskipulagsins. Samsvarandi breyting á aðalskipulagi er auglýst samhliða.

19. Stangarlækur 1 og 2 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breyting á deiliskipulagi tveggja lögbýla.
Í breytingunni felst að byggingarreitir fyrir útihús og íbúðarhús stækka auk þess sem heimilt verður að reisa allt að 5.000 fm útihús í stað 1.500 fm á hvoru landi fyrir sig. Þá er gert ráð fyrir litlum byggingarreit fyrir hrossaskjól.

20. Grund á Flúðum í Hrunamannahreppi. Breyting á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Grundar á Flúðum. Í breytingunni felst að lóðir 2 og 4 verða sameinaðar í eina lóð (nr. 2) fyrir verslun og þjónustu. Á lóðinni er gert ráð fyrir stækkun núverandi gistiheimilis á þann veg að viðbygging verði einnar hæðar með kjallara sem opnar sig til norðurs. Þá er gert ráð fyrir að á lóð nr. 4 (nr. 6 skv. gildandi dsk) verði heimilt að vera með 20 bílastæði.

21. Vinaminni á Flúðum. Breyting á deiliskipulag miðsvæðis.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Vinaminni á Flúðum. Um er að ræða um 0,4 ha spildu úr landi Hellisholta sem liggur upp að landi Laugarlands. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt upp í tvær jafnstórar íbúðarhúsalóðir. Fyrir á lóðinni er 57 fm íbúðarhús (fast nr.220-3917). Aðkoma að svæðinu breytist ekki en skv. deiliskipulaginu er sett kvöð á aðliggjandi lóð um aðkomu.

22. Silfurmýri í Hrunamannahreppi. Breyting á deiliskipulagi lögbýlis.
Í breytingunni fellst að þeir byggingarreitir og þau umsvif sem lýst er í fyrirliggjandi deiliskipulagi færist yfir á nýtt svæði (C) vegna hagræðingar. Gert er ráð fyrir að skipulag á svæðum A og B falli úr gildi.


Skipulagstillögurnar liggja frammi hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 21. janúar til 5. mars 2010. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á vefslóðinni http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/ Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 5. mars 2010 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.

Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps




Auglýsing um skipulag - Mýrdalshreppur
Tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025.
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum. Skipulagsgögn eru skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdrættir og umhverfisskýrsla. Ennfremur eru kynntar athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillöguna sbr. 3. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17, Vík og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps:www.vik.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 2. febrúar 2010 og skal skila þeim á skrifstofu Mýrdalshrepps.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Tillaga að deiliskipulagi þjónustusvæða við Sólheimajökul og í Reynisfjöru.

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögur að deiliskipulagi þjónustusvæða fyrir ferðamenn við Sólheimajökul og í Reynisfjöru skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Sólheimajökull.

Deiliskipulagið nær til 1 ha lóðar úr óskiptu landi Sólheimajarða. Svæðið er í um 300 m fjarlægð frá Sólheimajökli. Gert er ráð fyrir að byggð verði ferðamannaaðstaða í 1-2 húsum og geta byggingar verið samtals um 120 m². Aðkoma að svæðinu er um núverandi veg að Sólheimajökli.

Reynisfjara.

Deiliskipulagið nær til 1 ha lóðar úr óskiptu landi Reynishverfisjarða.Gert er ráð fyrir að byggð verði ferðamannaaðstaða í 1-2 húsum og geta byggingar verið samtals um 120 m². Aðkoma að svæðinu er um Reynishverfisveg.

Deiliskipulagstillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17, Vík, frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps: www.vik.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 2. febrúar 2010 og skal skila þeim á skrifstofu Mýrdalshrepps.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við deiliskipulagstillögurnar innan tilskilins frests teljast samþykkir þeim.

Sveinn Pálsson
sveitarstjóri.

Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, ásamt umhverfisskýrslu, samþykkta í bæjarstjórn 3. nóvember 2009.
Í breytingunni felst lenging syðri hafnarkants um 120 m og þar með stækkun svæðis 1.15.1 H og landfyllingar á sama svæði um 0,5 ha. Með lengingu kantsins verður mögulegt að taka á móti stærri skipum í höfninni.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 25. nóvember 2009 til 6. janúar 2010 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi hafnarsvæðisins í Krossanesi skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem umferðar- og þjónustusvæði hafnarinnar stækkar með lengingu hafnarkants í Jötunheimavík um 120 m til suðurs. Landfylling stækkar til samræmis. Athugasemdafrestur hennar er frá 25. nóvember 2009 til 6. janúar 2010.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 6. janúar 2010 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

25. nóvember 2009.
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.




Auglýsing um skipulag - Mosfellsbær
Við Skarhólabraut: Tillögur að deiliskipulagi og breytingum á aðalskipulagi.

Mosfellsbær auglýsir hérmeð skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi lóðar fyrir slökkvi- og lögreglustöð norðan Skarhólabrautar, næst gatnamótum við Vesturlandsveg. Lóðin er um 16.700 m² að stærð, með tvær tengingar við Skarhólabraut. Meginbyggingin er tveggja hæða, staðsett norðan til á lóðinni, með aðstöðu slökkviliðs í austurenda og fyrir miðju en lögreglustöð í vesturenda. Bílastæði og athafnasvæði verða sunnan hússins. Austast á lóðinni er gert ráð fyrir tækjageymslu í stakri byggingu. Hámarksnýtingarhlutfall er 0,4.

Samhliða ofangreindri tillögu að deiliskipulagi er einnig auglýst skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga tillaga að breytingum á aðalskipulagi. Í tillögunni felst að settur er inn 1,7 ha reitur með skilgreiningunni „svæði fyrir þjónustustofnanir“ norðan Skarhólabrautar næst Vesturlandsvegi. Vesturhluti þessa reits er í gildandi aðalskipulagi skilgreindur sem opið, óbyggt svæði en austurhluti hans er skilgreindur sem íbúðarsvæði (hluti af Túnahverfi).

Ofangreindar tillögur verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 19. nóvember 2009 til 31. desember 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Mosfellsbæjar á slóðinni:
http://www.mos.is/. Tillaga að breytingum á aðalskipulagi liggur einnig frammi hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 31. desember 2009. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

13. nóvember 2009.
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar.



Auglýsing um skipulag - Grindavík
Auglýsing um breytingar á aðalskipulagi Grindavíkur 2000 -2020 og tillögu að deiliskipulagi.
Auglýstar eru tillögur að þremur breytingum á aðalskipulagi auk tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð ásamt umhverfisskýrslum. Aðalskipulagstillögurnar er auglýstar með vísan til 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Deiliskipulagstillagan er auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Skipulagsuppdrættir, greinargerðir og umhverfisskýrslur munu liggja frammi til kynningar á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, í Grindavík frá 19. nóvember til 24. desember 2009. Enn fremur eru tillögurnar aðgengilegar á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og til sýnis hjá Skipulagstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillögurnar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skilað á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, fyrir 30. desember 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillögunar innan tilskilins frests teljast samþykkir þeim.

Breytingarnar eru:

1. Suðurstrandarvegur, færsla á legu vegarins til norðurs. Tengingar við aðliggjandi vegi og vegslóða eru aðlagaðar nýrri veglínu. Breytingin gerir einnig ráð fyrir þremur nýjum efnistökusvæðum tengdum vegagerðinni. Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, var samþykkt í Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur þann 29. júní 2009 og í bæjarráði þann 22. júlí 2009.

2. Suðvesturlínur. Breytingin felst í nýrri línu samsíða núverandi háspennulínu (Reykjaneslínu). Einnig tengingu Svartsengislínu 1 við núverandi Fitjalínu við Rauðamel. Tengivirki við Rauðamel verður fjarlægt. Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, var samþykkt í Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur þann 31. mars 2009 og í bæjarstjórn þann 22. apríl 2009.

3. Hesthúsahverfi við Dagmálaholt. Nýju hesthúsahverfi er afmarkað svæði norðan við núverandi hesthúsahverfi. Vegtenging milli fyrirhugaðs Suðurstrandarvegar og Austurvegar er færð til austurs. Um hringtorg við hlið undirganga er gerð tenging milli núverandi hesthúsahverfis og nýja hesthúsahverfisins. Jafnframt er vegurinn færður austur fyrir gámalosunar- og geymslusvæði bæjarins, merkt I2. Reiðleiðir og gönguleiðir eru skilgreindar nánar út frá nýju hesthúsahverfi, að mestu eftir nú þegar gerðum slóðum. Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, var samþykkt í Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur þann 17. júlí 2009 og í bæjarstjórn þann 22. júlí 2009.

4. Deiliskipulagstillaga fyrir hesthúsahverfi við Dagmálaholt.Deiliskipulagssvæðið er við Dagmálaholt vestan Húsafells. Reiknað er með tvískiptri uppbyggingu svæðisins, sitt hvoru megin við skeiðvöll og að fyrsti áfangi verði á svæði suðvestan reiðhallar ásamt reiðhöllinni sjálfri. Tillagan var samþykkt í Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur þann 17. júlí 2009 og í bæjarstjórn þann 22. júlí 2009.

19. nóvember 2009.

Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.



Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi kirkjugarðs á Naustahöfða, samþykkta í bæjarstjórn 20. október 2009.

Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Miðhúsabraut í suðvestri, Þórunnarstræti í vestri og brekkubrúninni í norðri og austri. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir þremur lóðum á svæðinu. Á lóðum fyrir Höfðakapellu og áhaldahús eru skilgreindir byggingarreitir fyrir frekari uppbyggingu á þjónustu og aðstöðu sem tilheyrir kirkjugarðinum. Á lóð fyrir kirkjugarðssvæðið er skilgreint greftrunarsvæði, reitir fyrir duftker, jarðvegstipp og athafnasvæði. Aðkoma að svæðinu verður annarsvegar frá Höfðagötu sem tengist inn á Þórunnarstræti og hinsvegar syðst á svæðinu frá Miðhúsabraut.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 4. nóvember til 16. desember 2009 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar:www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem opið svæði til sérstakra nota 2.61.11 O fyrir kirkjugarð á Naustahöfða stækkar úr 9,0 ha í 10,4 ha. Athugasemdafrestur hennar er frá 4. nóvember til 16. desember 2009.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 16. desember 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

4. nóvember 2009,

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Auglýsing um skipulag - Mosfellsbær
Miðbær Mosfellsbæjar. Tillaga að deiliskipulagi og breytingum á aðalskipulagi.
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að nýju deiliskipulagi miðbæjar. Skipulagssvæðið afmarkast til suðurs af Vesturlandsvegi, til vesturs af Langatanga og lóðum dvalarheimilis og leikskóla, til norðurs af Skeiðholti, Urðarholti og lóðum við Njarðarholt og Miðholt, en til austurs og suðausturs af Miðholti og Háholti og vesturmörkum Háholts 13-15 (Krónulóðar). Á hluta skipulagssvæðisins gilda nú eldri deiliskipulagsáætlanir, s.s. miðbæjarskipulag frá 2001, sem áformað er að falli úr gildi við samþykkt nýs deiliskipulags.
Í miðju skipulagssvæðisins er opið svæði, Urðirnar, undir hverfisvernd. Við Háholt/Bjarkarholt gerir tillagan ráð fyrir menningarhúsi og framhaldsskóla, auk nýrra íbúðarhúsa og verslunar- og þjónustubygginga, en eldri byggingar á þessu svæði víki. Gert er ráð fyrir nýjum íbúðarhúsum milli Þverholts og Hlaðhamra en núverandi Leikhús víki. Þá er gert ráð fyrir nýbyggingu til suðausturs frá Kjarna (Þverholti 2) og að núverandi hús norðan Þverholts vestan Kjarna víki fyrir nýjum byggingum, aðallega með íbúðum, en með verslunum á neðstu hæð næst Kjarna.

Samhliða ofangreindri tillögu að deiliskipulagi er einnig auglýst skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga tillaga að breytingum á aðalskipulagi.

Um er að ræða tvíþættar breytingar í miðbænum: Annarsvegar á afmörkun hverfisverndar á klapparholtinu Urðum, sem skerðist að sunnan en stækkar að sama skapi til norðurs, og hinsvegar stækkun miðsvæðis sunnan Bjarkarholts til vesturs, að Langatanga.

Ofangreindar tillögur verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 26. október 2009 til 7. desember 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Mosfellsbæjar á slóðinni:www.mos.is.
Tillaga að breytingum á aðalskipulagi liggur einnig frammi hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 7. desember 2009. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

20. október 2009,

Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar.


Auglýsing um skipulag - Hvalfjarðarsveit
Tillaga að aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Greinargerð, umhverfisskýrsla og skipulagsuppdrættir verða til sýnis frá og með 26. október 2009 til og með 25. nóvember 2009 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofu sveitarfélagsins Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit.
Á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjordur.is.
Á skrifstofu Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna. Athugasemdir skulu hafa borist eigi síðar en 9. desember 2009.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins, Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit, 301 Akranesi, eða á netfangið skuli@hvalfjardarsveit.is Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkja hana.
Við staðfestingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 munu eftirtaldar aðalskipulagsáætlanir falla úr gildi: Aðalskipulag Innri-Akraneshrepps 2002-2014, aðalskipulag Leirár- og Melahrepps 2002-2014, aðalskipulag Skilmannahrepps 2002-2014 og aðalskipulag Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014.

Hvalfjarðarsveit, 25. október 2009.

Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri.


Auglýsing um skipulag - Vesturbyggð
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 28. júlí 2009 að auglýsa skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar.
Breytingin tengist tjaldsvæðum að Hnjóti í Örlygshöfn og Melanesi á Rauðasandi auk frístundabyggðar í Dufansdal í Arnarfirði, öll staðsett í Vesturbyggð.
Tillögur að breytingum á aðalskipulagi eru þessar: Gert er ráð fyrir nýjum tjaldsvæðum að Hnjóti og Melanesi með hreinlætisaðstöðu. Auk þess er gert ráð fyrir nýjum vegi að tjaldsvæði á Melanesi sem verður að mestu fyrir neðan túngirðingu. Í Dufansdal er um að ræða 27,5 ha svæði fyrir frístundabyggð og er það flokkað sem landbúnaðarland. Á láglendi er landið að mestum hluta árframburður en þar sem það byrjar að rísa norðan við ána taka við mýrar á kafla. Að öðru leyti er landið að mestu vaxið birkikjarri.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 63, Patreksfirði, frá 1. október 2009 til 4. nóvember 2009. Ennfremur eru tillögurnar til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Vesturbyggðar fyrir 18. nóvember 2009 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Bæjarstjórinn í Vesturbyggð,
Ragnar Jörundsson.




Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Ölfus
Tillaga að breytingum á aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss, 2002-2014, vegna Bitruvirkjunar, Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæða við Þorlákshöfn og Gráuhnúka, niðurfellingu flugvallar, breytingar á vatnsverndarmörkum og akstursíþróttasvæðis.

Bæjarstjórn Ölfuss heimilar auglýsingu á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014 vegna Bitruvirkjunar, Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæða við Þorlákshöfn og Gráuhnúka, niðurfellingu flugvallar, breytingar á vatnsverndarmörkum og akstursíþróttasvæðis, samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum. Auglýsingin er skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdráttur og umhverfisskýrsla ásamt athugasemdum sem Skipulagsstofnun lagði fram með bréfum 30. mars 2009, 25. maí 2009 og 31. júlí 2009.

Markmið sveitarstjórnar Ölfuss með breytingunni er margþætt. Verið er að auka við framboð á stærri sem og smærri iðnaðarlóðum vestan Þorlákshafnar þar sem stutt er í orku á Hellisheiði, góð hafnarskilyrði og með tilkomu Suðurstrandarvegar í náinni framtíð, hefur aukið ásókn í lóðir fyrir orkufrekan iðnað. Til að koma orku til þessara iðnaðarsvæða, þarf að auka við flutning raforku og er því gert ráð fyrir tveimur 220 kV raflínum frá annarsvegar tengivirki við Kolviðarhól og hinsvegar fyrirhuguðu tengivirki á Hellisheiði.

Þann 19. mars 2008 var auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014, sem náði m.a. til virkjanasvæða við Hverahlíð og Bitru. Fjöldi athugasemda barst við auglýsta tillögu og nær allar vegna fyrirhugaðs virkjanasvæðis við Bitru. Vegna aðstæðna sem þá voru, ákvað Sveitarfélagið Ölfus að fresta aðalskipulagi á því landsvæði sem tekur til Bitruvirkjunar og var svæðið auðkennt sérstaklega á skipulagsuppdrætti.

Sveitarfélagið Ölfuss telur að vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu sé þörfin fyrir nýja atvinnusköpun brýnni en nokkru sinni fyrr. Með sjálfbærri orkunýtingu í sveitarfélaginu skapast forsendur til fjölbreyttrar uppbyggingar á atvinnustarfsemi fyrir allt Suðurland. Með skýrri marksmiðssetningu, þar sem tekið er tillit til umhverfisins og ströngum kröfum um umhverfisfrágang, telur sveitarfélagið að uppbygging á orkuvinnslu við Bitru og Gráuhnúka vinni saman með þeirri starfsemi sem fyrir er á svæðinu, þ.e. útivist og ferðaþjónustu sem og einnig að afla betri upplýsinga um þá auðlind sem jarðhitinn er, til að auka vitneskju um sjálfbærra nýtingu hennar. Við endurskoðun á aðalskipulagi Ölfuss hafa markmiðum iðnaðarsvæða verið breytt. Lögð er áhersla á umhverfisvæna orkuöflun og að við virkjun og mannvirkjagerð alla verði horft til meiri samþættingu orkuvinnslu og náttúruverndar á Hengilssvæðinu og þá einnig horft til friðunar ákveðinna svæða. Með fyrrgreindum atriðum telur sveitarfélagið að rökstudd afstaða sé tekin til álits Skipulagsstofnunar frá 19. maí 2008 og tillit sé tekið til þeirra athugasemda sem bárust sem flestar við Bitruvirkjun.

Helstu atriðin í aðalskipulagsbreytingunni eru:

  • Iðnaðarsvæði, markmið og leiðir. Stækkun iðnaðarsvæðis Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæði fyrir Bitruvirkjun, nýtt rannsóknar- og vinnslusvæði við Gráuhnúka, ný iðnarðsvæði vestan Þorlákshafnar.
  • Vatnsvernd og náttúruvá.
  • Opin svæði til sérstakra nota.
  • Samgöngur og veitur, s.s. Þorlákshafnarlín 2 og 3.
  • Efnistökusvæði.

Sveitarfélagið Ölfuss tekur fram að þeir sem gerðu athugasemdir við auglýsta tillögu að aðalskipulagsbreytingu árið 2008, þegar Bitra var auglýst, þurfa að ítreka þær við þessa auglýsingu telji þeir að athugasemdirnar eigi einnig við nú.

Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn á skrifstofutíma og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 22. ágúst 2009 til 19. september 2009. Skipulagsgögn má sjá á heimasíðu www. olfus.is og www.landmotun.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við aðalskipulagið. Frestur til þess að skila þeim inn er til 3. október 2009.
Skila skal athugasemdum inn á bæjarskrifstofur Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Sigurður Jónsson
skipulags- og byggingarfulltrúi.



Auglýsing um skipulag - Miðhálendi Íslands
Samvinnunefnd miðhálendis auglýsir tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015 er tekur til landsvæðis á norðurhluta Kröflusvæðis og suðurhluta Gjástykkis í Skútustaðahreppi.
Auglýsingin er skv. 14. gr. a sbr. 13. gr. a í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 með síðari breytingum. Jafnframt er tillagan í samræmi við lög nr. 105/2006 um mat á umhverfisáhrifum áætlana.
Markmið breytingartillögunar er að opna fyrir rannsóknir á jarðvarma með í huga hugsanlega stækkun orkuvinnslusvæðis í Kröflu og vegna fyrirhugaðrar orkuvinnslu í Gjástykki. Fyrirhuguð orkuvinnsla jarðvarma í Skútustaðahreppi er innan núverandi náttúruverndarsvæðis svæðisskipulags miðhálendis, landslagsheildar sem nefnd er Ódáðahraun og Austurfjöll og utan mannvirkjabelta.
Um er að ræða breytingar á tveimur svæðum, annars vegar á 45 ha svæði nyrst á Kröflusvæðinu og hinsvegar á tveimur skikum sem eru hvor um sig um 4 ha syðst í Gjástykki.

Breytingartillagan verður til sýnis á slóðinni www.halendi.is og á skrifstofutíma á eftirtöldum stöðum frá og með 27. júlí til og með 24. ágúst 2009.

  • Skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðarvegi, Mývatni.
  • Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
  • Landsbókasafni - Háskólasafni, Arngrímsgötu 3, Reykjavík.
  • Sýslumanninum á Akureyri, Hafnarstræti 107, Akureyri.
  • Sýslumanninum á Höfn, Hafnarbraut 36, Höfn.
  • Sýslumanninum á Selfossi, Hörðuvöllum 1, Selfossi.
  • Sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18, Kópavogi.
  • Sýslumanninum á Ísafirði, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði.
  • Sýslumanninum í Borgarnesi, Bjarnarbraut 2, Borgarnesi.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út á 7. september 2009.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu samvinnunefndar miðhálendis að Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.

Óskar Bergsson

formaður samvinnunefndar miðhálendis



Útgáfud.: 27. júlí 2009

Auglýsing um skipulag - Djúpavogshreppur
Aðalskipulag Djúpavogshrepps 2008-2020.
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020, dreifbýli og þéttbýli, ásamt umhverfisskýrslu.
Tillagan er auglýst skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum og verður til sýnis í Ráðhúsi Djúpavogshrepps, Bakka 1 á Djúpavogi á venjulegum opnunartíma frá 6. júlí - 5. ágúst 2009. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á vefsíðu Djúpavogshrepps, www.djupivogur.is.
Þeir, sem vilja gera athugasemd við tillöguna, skulu gera það skriflega í síðasta lagi fyrir kl. 15.00 miðvikudaginn 19. ágúst 2009.
Athugasemdum skal skilað á skrifstofu Djúpavogshrepps, Ráðhúsinu, Bakka 1, 765 Djúpavogi. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.

Sveitarstjóri.


Auglýsing um skipulag - Austur-Húnavatnssýsla
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu auglýsir skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016 á jörðunum Sölvabakka í Blönduósbæ, Hnjúkum í Blönduósbæ og Öxl II í Húnavatnshreppi.

Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar á svæðisskipulaginu.
    1. Landbúnaðarsvæði í landi Sölvabakka breytt í sorpförgunar- og efnistökusvæði.
    2. Landbúnaðarsvæði og opnu svæði til sérstakra nota austan við Blönduós breytt í iðnaðar- og athafnasvæði.
    3. Landbúnaðarsvæði á Öxl II í Húnavatnshreppi breytt í verslunar- og þjónustusvæði og opið svæði til sérstakra nota.

Breytingartillagan, greinargerð og umhverfisskýrsla verður til sýnis á eftirfarandi stöðum; Skrifstofu Húnavatnshrepps, Húnavöllum, Blönduósi, skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, skrifstofu sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3, Skagaströnd, skrifstofu Skagabyggðar, Örlygsstöðum 2, Skagaströnd og á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá 6. júlí 2009 til 4. ágúst 2009.
Tillagan er einnig til sýnis á eftirfarandi heimasíðum: www.hunavatnshreppur.is, www.blonduos.is, www.skagastrond.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út þriðjudaginn 18. ágúst 2009. Skila skal athugasemdum á þeim stöðum sem gögnin eru til sýnis og eru nefndir hér að ofan og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur Húnavatnssýslu.


Auglýsing um skipulag - Ísafjarðarbær
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
 
Aðalskipulagið ásamt umhverfisskýrslu tekur til alls lands sveitarfélagsins, frá Langanesi í suðri til Geirólfsnúps í norðri.
Aðalskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á bæjarskrifstofum í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, Skipulagsstofnun, á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is og á heimasíðu Skipulagsstofnunar frá og með sunnudeginum 28. júní 2009 til og með sunnudagsins 26. júlí 2009.  Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna.  Frestur til að skila inn athugasemdum er til sunnudagsins 9. ágúst 2009.  Skriflegum athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofur Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu Hafnarstræti 1, Ísafirði.
 
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
 
Ísafirði, 22. júní 2009
Jóhann Birkir Helgason, sviðstjóri umhverfissviðs



Auglýsing um skipulag - Reykjanesbær
1.Tillaga að nýju aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 4. júní 2009 til og með 10. júlí 2009. Tillöguna má einnig skoða á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is og á heimasíðu Kanon arkitekta, www.kanon.is og VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is.

2. Tillaga að deiliskipulagi, tengivirki á Njarðvíkurheiði.

Í samræmi við og samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi ásamt greinagerð og umhverfisskýrslu vegna tengivirkis á Njarðvíkurheiði.
Skipulagssvæðið liggur austan við öryggis- og vallarsvæði, s.k. Pattersonsvæði, á opnu svæði í sigdalnum sunnan við Sólbrekkur og Seltjörn. Stærð skipulagssvæðis er 2,5 ha og núverandi háspennulínur um Njarðvíkurheiði liggja um svæðið.
Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ frá og með 4. júní 2009 til og með 10. júlí 2009.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 31. júlí 2009.
Hægt er að gera athugasemdir við tillögurnar á íbúavefnum mittreykjanes.is eða skila inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests telst samþykkur þeim.

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar.


Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir hér með tillögu að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 ásamt umhverfisskýrslu.
Aðalskipulagstillagan nær til alls lands innan marka sveitarfélagsins þ.m.t. þéttbýlisstaðanna Hofsóss, Sauðárkróks, Hóla, Varmahlíðar og Steinsstaða.
Tillagan, greinargerð og uppdrættir ásamt umhverfisskýrslu, er auglýst samkvæmt 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Tillagan, ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar, verður til sýnis í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, á venjubundnum opnunartíma frá fimmtudeginum 28. maí 2009 til fimmtudagsins 2. júlí 2009. Jafnframt er tillagan, ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar, til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á vefsíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar á www.skagafjordur.is.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu gera það skriflega í síðasta lagi fyrir kl. 15.00 föstudaginn 17. júlí 2009. Athugasemdum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins, Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 51, 550 Sauðárkróki eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is.
Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests telst samþykkur henni.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar.



Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Vogar
Auglýsing um tillögu að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga auglýsir skv. 18. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028, ásamt umhverfisskýrslu skv. lögum nr. 105/2006.
Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2, Vogum og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, frá og með 15. maí 2009 til og með 19. júní 2009 og er hún jafnframt aðgengileg á vef sveitarfélagsins www.vogar.is. Kynningarfundur verður haldinn 21. maí næstkomandi í Tjarnarsal.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og umhverfisskýrsluna, en hana má finna í kafla 3 í greinargerð. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. júlí 2009.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga.

Vogum, 15. maí 2009.

Bæjarstjóri.


Auglýsing um skipulag - Hveragerðisbær
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hveragerðis 2005-2017, „Tvöföldun Suðurlandsvegar og aðlögun á landnotkun“, samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Um málsmeðferð er farið skv. 18. gr. sömu laga.
Í breytingartillögunni felst breytt lega Suðurlandsvegar til suðurs í tengslum við tvöföldun vegarins og breytingar, sem tengjast henni, bæði beint og óbeint. Einnig felst í breytingartillögunni aðlögun að nýlega samþykktum deiliskipulögum og stígum sem nýlega hafa verið lagðir.

Breytingartillagan ásamt greinargerð og Umhverfisskýrslu verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2, frá og með 25. maí 2009 til og með 22. júní 2009. Ennfremur verður tillagan til sýnis á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Tillöguna má einnig finna á heimasíðu Hveragerðisbæjar: http://www.hveragerdi.is.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 6. júlí 2009. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2, Hveragerði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.

Guðmundur F. Baldursson
skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar.

Auglýsing um skipulag - Kópavogur
Suðvesturlínur. Styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi. Breytt aðalskipulag.
Tillaga að breyttu aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 auglýsist hér með skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Landsnet hefur lagt fram áætlun um uppbygginu og styrkingu á flutningskerfi raforku á Suðvesturlandi frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnarfirði og þaðan út á Reykjanesskaga að Helguvík og Reykjanesvirkjun. Ætlunin er að byggja kerfið upp til framtíðar þannig að það verði í stakk búið til að mæta framtíðaráformum um orkuflutning á svæðinu, jafnt fyrir atvinnustarfsemi og til almannanota.
Hluti kerfisins er innan marka Kópavogsbæjar og skiptist í þrjá hluta. Við Lyklafell við Sandskeið eru Búrfellslína 3 (400 Kv) og Kolviðarhólslína 1 (220 kV) og er þar gert ráð fyrir nýrri línu, Kolviðarhólslínu 2 (220 kV), og niðurrifi Sogslínu 2 (132 kV). Á hinum tveimur svæðunum, fylgir fyrirhugað kerfi núverandi háspennulínu (Kolviðarhólslínu 2 (220 kV), áður Búrfellslínu 3B) ofan Selfjalls og Húsafells. Þar er gert ráð fyrir tveimur nýjum háspennulínum (Sandskeiðslínu 1 (400 kV) og Búrfellslínu 3 (400 kV)). Alls verða því þrjár samhliða háspennulínur með u.þ.b 50 m millibili á lagnaleiðinni auk þess sem gert er ráð fyrir um 30 til 50 m helgunarsvæði sitt hvoru megin við línurnar.
Núverandi háspennulínur á Vatnsendaheiði (Hamraneslínur 1 og 2 (220 kV)) verða fjarlægðar þegar Búrfellslína 3 er komin í rekstur.
Breytingin er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í janúar 2009. Einnig er gerð grein fyrir breytingunni í: Umhverfisskýrslu dags. í janúar 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8.30 til 16.00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8.30 til 15.00 frá 26. maí 2009 til 23. júní 2009. Einnig má sjá tillögunar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15.00 þriðjudaginn 7. júlí 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Skipulagsstjóri Kópavogs
.

Auglýsing um skipulag - Húnaþing vestra
Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014 og breyting á deiliskipulagi athafnasvæðis við Búland og nýtt deiliskipulag fyrir smábýlalóðir austan við Höfðabraut.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum 16. apríl 2009 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014 skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingin nær til svæðis beggja vegna við Höfðabraut þar sem iðnaðar og atvinnusvæði er breytt í íbúðarsvæði og óbyggt svæði. Opnu svæði til sérstakra nota er breytt í athafnasvæði og annað stækkað. Þá er tengibraut frá Hvammstangabraut að Höfðabraut felld niður. Gönguleið er færð nær ströndinni og ný reiðleið er sýnd meðfram Höfðabraut.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis við Búland skv. 26.gr skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er í samræmi við aðalskipulagsbreytinguna þar sem iðnaðar- og athafnalóðum er fækkað og gatnamótum Hvammstangabrautar og Eyrarlands breytt úr hringtorgi í krossgatnamót.
Nýtt deiliskipulagi fyrir smábýli austan við Höfðabraut er auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Þar er gert ráð stórum lóðum fyrir 5 einbýlishús með bílgeymslu og t.d. hesthúsi, gróðurhúsi eða vinnustofu.
Skipulagsuppdrættir og greinargerðir munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 20. maí 2009 til 18. júní 2009. Ennfremur verða tillögunar til sýnis á heimasíðu Húnaþings vestra; www.hunathing.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 3.júlí 2009 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.


Auglýsing um skipulag - Fjallabyggð
Óverulega breytingu á Aðalskipulagi Siglufjarðar 2003-2023

Tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Siglufjarðar 2003-2023.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum 17. mars 2009 að auglýsa tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Siglufjarðar 2003-2023 og auglýsist hún hér með. Tillagan er auglýst með vísan til 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Aðalskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir að 603 m2 lóð á horni Þormóðsgötu og Norðurgötu sem nú er skilgreind sem athafnasvæði verði skilgreind sem iðnaðarsvæði. Þar gerir Rarik ráð fyrir að reisa spennistöð.
Skipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga frá 20. apríl 2009 til 11. maí 2009. Tillagan er einnig til sýnis í sýningarrými Skipulagsstofnunar að Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu gera það með skriflegum hætti í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 mánudaginn 11. maí 2009. Hægt er að skoða skipulagstillöguna á vefsíðunni www.fjallabyggd.is. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Spennistöð óveruleg breyting á Aðalskipulagi Siglufjarðar 2003 - 2023

Skipulags- og byggingarfulltrúi Fjallabyggðar.



Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Álftanes
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Álftaness 2005-2024 vegna stofnlagna fráveitu auglýsist hér með samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Breytingar ná til áætlaðra framkvæmda meðfram strandlengjunni frá Helguvík til vesturs að Seylu á Breiðabólstaðareyri. Fallið er frá byggingu hreinsistöðvar á Álftanesi en þess í stað er öllu skolpi dælt um sjólögn yfir Skerjafjörð til Reykjavíkur, þaðan sem það berst að hreinsistöð við Ánanaust. Fyrirhuguð útrás við Hrakhólma (nú hálfbyggð) fær þá hlutverk neyðarútrásar í stað þess að verða meginútrás frá hreinsistöð.

Skipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Álftaness á Bjarnastöðum og á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík frá kl. 8.00 - 16.00 alla virka daga frá 14. apríl til og með 26. maí 2009 og einnig á vef Sveitarfélagsins Álftaness,www.alftanes.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 26. maí 2009. Athugasemdum skal skilað skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Álftaness, Bjarnastöðum, 225 Álftanesi. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Álftanesi, 8. apríl 2009.

Bjarni S. Einarsson bæjartæknifræðingur.



Auglýsing um skipulag - Dalvíkurbyggð
Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 ásamt umhverfisskýrslu (kafli 7.2 í greinargerð). Í aðalskipulaginu felst endurskoðun á aðalskipulagi Dalvíkur 1992-2012 og aðalskipulagi Árskógshrepps 1991-2011 auk þess sem aðalskipulagið nær nú til alls lands innan marka sveitarfélagsins.


Tillagan, sem er auglýst samkvæmt 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., verður til sýnis í Ráðhúsinu, Dalvík, á venjubundnum opnunartíma frá mánudeginum 6. apríl 2009 til mánudagsins 18. maí 2009. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á vefsíðu Dalvíkurbyggðarwww.dalvik.is.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu gera það skriflega í síðasta lagi fyrir kl. 15.00 miðvikudaginn 20. maí 2009. Athugasemdum skal skilað á bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu, 620 Dalvík eða á netfangið steini@dalvik.is.
Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests telst samþykkur henni.

Byggingafulltrúi Dalvíkurbyggðar.


Auglýsing um skipulag - Vopnafjarðarhreppur
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, Efnistaka.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum 20. mars 2009 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 ásamt umhverfisskýrslu og auglýsist hún hér með. Tillagan er auglýst með vísan til 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Aðalskipulagsbreytingin miðar að aukinni efnistöku í Vesturárdal, Vopnafjarðarhreppi úr 28 aðskildum námum og þar af þremur sem ætlaðar eru til framtíðarnýtingar. Samanlagt flatarmál fyrirhugaðra efnistökusvæða er 30 ha að stærð. Tilgangurinn er fyrirhuguð uppbygging nýrrar vegtengingar Vopnafjarðar við hringveg.
Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15 frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga frá 3. apríl 2009 til 15. maí 2009. Tillagan er einnig til sýnis í sýningarrými Skipulagsstofnunar að Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillögurnar skulu gera það með skriflegum hætti í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 föstudaginn 15. maí 2009. Hægt er að skoða skipulagstillöguna á vefsíðunni www.vopnafjardarhreppur.is. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests telst samþykkur henni.

Skipulagsauglysing_adalskipulag_namur.pdfUmhverfisskyrsla_Adalsk.br_vopna.pdfAdalskipulagsbreyting_Namur.pdf

Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.


Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 samþykkta í bæjarstjórn 16. desember 2008.
Í breytingartillögunni felst að gert er ráð fyrir 0,3 ha landfyllingu við innsiglinguna í smábátahöfnina í Sandgerðisbót, hafnarsvæði 1.32.2 H. Grjótgarður inni í höfninni verður fjarlægður og strandlínan innst í höfninni lagfærð til samræmis við núverandi stöðu. Afmörkun hafnarsvæðisins og aðliggjandi svæða breytist lítillega.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 25. mars til 6. maí svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: ?Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir?.
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi Sandgerðisbótar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem bætt er við nýrri lóð fyrir verbúð, innsigling inn í smábátahöfnina er bætt sem og önnur aðstaða fyrir smábátasjómenn. Athugasemdafrestur hennar er frá 25. mars til 6. maí 2009.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 6. maí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 25. mars 2009.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.

Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009.

Með breytingunni er afmarkað 2,6 ha iðnaðarsvæði, 3.11.3 I, undir malbikunarstöð á Glerárdal. Svæði á náttúruminjaskrá, 1.61.5 N, sem tekur til Glerárgils minnkar við breytinguna um 1 ha. Jafnframt er þéttbýlismörkum Akureyrarbæjar breytt norðan Glerár.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 1. apríl til 13. maí 2009 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is, undir: ?Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir?.

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi Malbikunarstöðvar Akureyrar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem skilgreind er lóð og byggingarreitir hennar. Athugasemdafrestur hennar er frá 1. apríl til 13. maí 2009.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 13. maí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 1. apríl 2009.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.



Auglýsing um skipulag - Borgarfjarðarhreppur
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps.
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps 2004-2016 með síðari breytingum, skv. 1.mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Í breytingunni felst að á jörðinni Klyppstað í Loðmundarfirði verði gert ráð fyrir allt að 1 ha lóð fyrir verslun og þjónustu. Þar er fyrirhuguð uppbygging ferðaþjónustu. Svæðið er á landbúnaðarsvæði og á náttúruminjaskrá. Svæðið er hverfisverndað í aðalskipulagi.
Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á hreppsstofunni á Borgarfirði og á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 frá og með mánudeginum 30. mars nk. til mánudagsins 27. apríl 2009.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 11. maí 2009. Skila skal athugasemdum á hreppsstofu, 720 Borgarfirði.
Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.


Byggingarfulltrúi Borgarfjarðarhrepps.


Auglýsing um skipulag - uppsveitir Árnessýslu og Flóahrepps (Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunnamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur)
Samkvæmt 1. mgr 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:

Skeiða- og Gnúpverjahreppur. Tengivegur yfir Þjórsá.

Þann 6. febrúar s.l. var auglýst til kynningar tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna færslu á tengiveg yfir Þjórsá. Vegna galla í skipulagsgögnun áður auglýstrar tillögu er tillagan hér með auglýst að nýju með lagfærðum gögnum.
Í gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir tengivegi frá Þjórsárdalsvegi yfir Þjórsá austan Þjórsárholts og inn á Landveg. Með breytingunni er brúarstæðið fært um 3 km vestar og færist vegstæðið að sama skapi og er nú gert ráð fyrir að vegurinn tengist Þjórsárdalsvegi rétt vestan við þéttbýlið Árnes.
Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 12. mars til 23. apríl 2009. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á vefslóðinni
http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/ Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 23. apríl 2009 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.

Pétur Ingi Haraldsson
s
kipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps.


Auglýsing um skipulag - Grímsnes- og Grafningshreppur
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Grímsnes- og Grafnings 2008-2020.
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum, sbr. einnig lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Grímsnes og Grafnings 2008-2020. Aðalskipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfismat (sbr. lög nr. 105/2006), ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar og öðrum fylgigögnum munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps að Borg, frá og með 12. mars 2009 til og með 23. apríl 2009. Ennfremur verður tillagan til sýnis á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, og hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni. Skipulagsgögn má einnig nálgast á vef Grímsnes- og Grafningshrepps www.gogg.is og á slóðinni www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og skal þeim skilað til Grímsnes- og Grafningshrepps eigi síðar en 23. apríl 2009 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan ofangreinds frests, teljast samþykkja hana.

Pétur Ingi Haraldsson

skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps.


Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 samþykkta í bæjarstjórn 21. október 2008.
Með breytingunni verður afmarkað um 5,1 ha opið svæði til sérstakra nota, 2.61.18 O, sem ætlað er undir smábátahöfn með um 50-100 bátalægjum og starfsemi siglingaklúbbs. Gert er ráð fyrir nýrri 4,7 ha landfyllingu vestast á Leirunni norðan Leiruvegar.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 11. mars til 22. apríl svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: „Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir“.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 22. apríl 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 11. mars 2009.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.


Auglýsing um skipulag - Fljótsdalshérað
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028, samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Tillagan er til sýnis á skrifstofum Fljótsdalshéraðs Einhleypingi 1, Fellabæ og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík frá 4. mars til og með 16. apríl 2009. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Fljótsdalshéraðs www.fljotsdalsherad.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til skila inn athugasemdum er til fimmtudagsins 16. apríl 2009.
Skila skal athugasemdum skriflega til skipulags-og byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstöðum, eða á netfangið herad@alta.is.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Fljótsdalshéraðs.



Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi æfingasvæðis við Skarðshlíð, samþykkta í bæjarstjórn 17. febrúar 2009.
Deiliskipulagssvæðið liggur milli Skarðshlíðar og Hörgárbrautar. Skilgreind eru lóðarmörk æfingasvæðis fyrir frjálsar íþróttir sem stækkar núverandi íþróttasvæði Þórs handan Skarðshlíðar. Ekki er gert ráð fyrir varanlegum byggingum á svæðinu. Lóð nr. 46 við Skarðshlíð minnkar um 1.182 m² og er sá hluti felldur inn í æfingasvæðið.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 4. mars til 15. apríl 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: „Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir“.
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem afmarkað er opið svæði til sérstakra nota norðan Skarðshlíðar. Athugasemdafrestur hennar er frá 4. mars til 15. apríl 2009.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 15. apríl 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 4. mars 2009.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.


Auglýsing um skipulag - niðurfelling svæðisskipulags Héraðssvæðis
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Héraðssvæðis 1998-2010 auglýsir, skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Héraðssvæðis 1998-2010 með síðari breytingum.
Gerð er tillaga um að fella niður svæðisskipulag Héraðssvæðis 1998-2010 með síðari breytingum.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Fljótsdalshéraðs Einhleypingi 1, Fellabæ, Borgarfjarðarhrepps og Fljótsdalshrepps, Végarði, frá og með 4. mars 2009 til 16 apríl 2009. Þau sveitarfélög sem málið varðar eru Fljótsdalshreppur, Borgarfjarðarhreppur og Fljótsdalshérað. Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðum sveitarfélaganna.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 16. apríl 2009. Skila skal athugasemdum skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs Lyngási 12, 700 Egilsstaðir. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir.

F.h. samvinnunefndar um svæðisskipulag Héraðssvæðis 1998-2010

Ómar Þ. Björgólfsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Fljótsdalshéraðs.

Greinargerð tillögu: Niðurfelling_SSKHérað


Auglýsing um skipulag - svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins samþykkti á fundi sínum 14. nóvember 2008 að auglýsa skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins fyrir Kársnes-vesturhluta.
Á skipulagssvæðinu sem er alls um 40 ha er gert ráð fyrir að landnotkun breytist úr iðnaðar- og hafnarsvæði í byggðareit fyrir blandaða byggð (atvinnuhúsnæði og íbúðir). Í breytingunni er jafnframt gerð tillaga að nýrri landfyllingu allt að 13 ha umhverfis núverandi hafnarsvæði eins og það er skilgreint skv. aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012.
Hluti landfyllingarinnar fær landnotkun opins óbyggðs svæðis. Breytingin er unnin á grundvelli endurskoðunar á rammaskipulagi af framtíðaruppbyggingu vestast á Kársnesi.
Þær breytingar sem hér eru lagðar til fela í sér breytingar á töflum 3.1 og 3.2 í svæðisskipulaginu um fjölda íbúða og stærð atvinnuhúsnæðis. Fjöldi íbúða eykst um 800 og stærð atvinnuhúsnæðis í „Kópavogur vestur“ minnkar um 10.000 m² til loka skipulagstímabilsins. Heildarfjöldi íbúða í „Kópavogur vestur“ verður eftir breytingu 10.050. Heildarstærð atvinnuhúsnæðis í „Kópavogur vestur“ verður eftir breytingar 606.000 m² í stað 616.000 m².

Markmið með breytingunni er að:
    • Auka byggingarland með viðbótar landfyllingu á Kársnesi og auka jafnframt byggð.
    • Falla frá hafskipahöfn og byggja svæðið upp með blandaðri landnotkun ( íbúðir / verslun og þjónusta).
    • Skapa fallegt umhverfi og auka gæði byggðarinnar.
    • Skapa tækifæri fyrir fjölbreyttari þjónustu og betri nýtingu svæðisins.
Með tillögunni er kynnt umhverfisskýrsla dags. í nóvember 2008.

Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík á skrifstofutíma, á skrifstofu SSH í Kópavogi að Hamraborg 9, 2. hæð og á skrifstofum sveitarfélaganna, sem standa að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins (Álftanes, Garðabær, Hafnarfjörður, Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes) frá 2. desember 2008 til 6. janúar 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna og umhverfismat hennar. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til skrifstofu SSH eigi síðar en kl. 15.00 föstudaginn 20. janúar 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024.
Auglýsing um skipulag - Húnaþing vestra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum 9.október 2008 að auglýsa til kynningar breytingar á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014 skv. 1. mgr. 18. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingin nær til hluta jarðarinnar Bessastaða á Heggstaðanesi. Landnotkun er breytt úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði þar sem fyrirhugað er að setja upp sendistöð fyrir tal- og gagnaviðskipti við flugvélar. Ennfremur er gerð breyting á tengivegi til samræmis við legu hans í landi Bessastaða.
Jafnframt er auglýst deiliskipulag sem nær yfir iðnaðarsvæðið skv. 25. gr skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Samkvæmt deiliskipulaginu fylgir aðkomuvegur að stöðvarhúsi að mestu núverandi vegslóða og þá er einbreiður vegslóði milli loftneta. Stöðvarbygging er allt að 200 m² og allt að 12 loftnet á bilinu 18-40 m á hæð. Fjárheld girðing verður umhverfis svæðið.


Skipulagsuppdrættir og greinargerðir munu liggja til sýnis á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 23. nóvember 2008 til 21. desember 2008. Ennfremur verða tillögurnar til sýnis á heimasíðu Húnaþings vestra, www.hunathing.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 5. janúar 2009 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Skúli Þórðarson
sveitarstjóri Húnaþings vestra.


Auglýsing um skipulag - Keflavíkurflugvöllur
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025, vegna niðurfellingar landnotkunar innan Sandgerðis.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025 vegna niðurfellingar landnotkunar innan Sandgerðisbæjar, samkv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Aðalskipulagið er í formi aðalskipulagsuppdráttar með áfastri greinargerð.
Í breytingartillögunni felst að stjórnsýslumörkum Keflavíkurflugvallar, er breytt gagnvart Sandgerðisbæ, sem skilgreind er í lögum nr. 176/2006 og með vísan til auglýsingar nr. 38/2007 um að hluti varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli skuli tekinn í borgaraleg not. Þar með minnkar skipulagssvæðið,og niður fellur landnotkun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2005-2025 innan marka Sandgerðisbæjar. Landnotkun var að mestu skilgreind sem óbyggð svæði, grannsvæði vatnsverndar og sorpurðunarsvæði. Í skipulagsgreinargerð kemur fram að samtímis er unnið að breytingu á aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 1997-2017, þar sem sett verður fram landnotkun á þessu sama svæði.
Á því svæði, sem samkv. þessari breytingu, verður innan marka Sandgerðisbæjar, er lítið svæði sunnan Sandgerðisvegar, sem áfram verður hluti aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2005-2025, enda er um að ræða öryggissvæði B, ratsjárstöð H-1, sem ekki er tekið til borgaralegra nota, samkv. skilgreiningu laganna nr. 176/2006.

Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá 24.október 2008 til 24. nóvember 2008. Jafnframt mun aðalskipulagstillagan verða kynnt á heimasíðu Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli sem er www.kefairport.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna og skulu þær vera skriflegar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til miðvikudags 10. desember 2008. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavíkurflugvelli.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við aðalskipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Keflavíkurflugvelli, 17. október 2008.

Magnús Guðmannsson skipulags- og byggingarfulltrúi,

f. h. skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar.
Auglýsing um Aðalskipulag Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð auglýsir tilllögu að aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 ásamt umhverfismati í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana.
Tillagan verður til kynningar á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar á Reyðarfirði og Norðfirði og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík frá 2. október til og með 14. nóvember 2008. Jafnframt má nálgast hana á vef Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, geta gert athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila athugasemdum er til og með 14. nóvember 2008. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði. Þeir sem ekki koma á framfæri athugasemdum innan framangreinds frests teljast samþykkir tillögunni.

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar.

Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps
Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkti á fundi sínum 5. ágúst 2008 að auglýsa til kynningar eftirfarandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps 2002-2014. skv. 1. mgr. 18. gr. skipulags og byggingarlaga nr 73/1997 með síðari breytingum:

Skaftárhreppur - aðalskipulag 2002-2014. Breyting á aðalskipulagi í landi Dalshöfða.

Í breytingartillögunni felst að virkjun við Hnútu er stækkuð úr 2,5 MW í allt að 15 MW. Ennfremur er jarðstreng frá virkjuninni að tengivirki breytt úr 11 kV í 66 kV.

Skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15 á Kirkjubæjarklaustri og á heimasíðu Skaftárhrepps, 
www.klaustur.is, frá 5 september til 3. október 2008. Ennfremur verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík á sama tíma.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Athugasemdum skal skila á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15, Kirkjubæjarklaustri, fyrir 17. október 2008 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Skaftárhrepps.
Auglýsing um niðurfellingu svæðisskipulags
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu auglýsir skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu 1992-2012 með síðari breytingum.
Gerð er tillaga um að fella niður svæðisskipulag Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu 1992-2012, með síðari breytingum.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofum viðkomandi sveitarfélaga, frá og með 25. ágúst til 7. október 2008. Þau sveitarfélög sem málið varðar eru Dalabyggð og Reykhólahreppur. Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðum sveitarfélaganna og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út 7. október 2008. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

F. h. samvinnunefndar,

Grímur Atlason formaður
Auglýsing um skipulag - Dalabyggð
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð, umhverfisskýrsla og skýringaruppdrættir liggja frammi á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal, frá 25. ágúst til 7. október 2008. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu Dalabyggðar, www.dalabyggd.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila skriflegum til skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardalur, merkt aðalskipulag, fyrir 7. október 2008. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Samtímis er auglýst tillaga að niðurfellingu Svæðisskipulags Dalasýslu.

Sveitarstjórinn í Dalabyggð


Auglýsing um skipulag - Reykhólahreppur
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð, umhverfisskýrsla og skýringaruppdrættir liggja frammi á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum, frá 25 ágúst til 7. október 2008. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu Reykhólahrepps, www.reykholar.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila skriflegum til skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólar, merkt aðalskipulag, fyrir 7. október 2008. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Samtímis er auglýst tillaga að niðurfellingu Svæðisskipulags Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu.

25. ágúst 2008.

Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi
Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Ölfus
Bæjarstjórn Ölfuss auglýsir hér með breytingu á Aðalskipulagi Ölfus 2002-2014 með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin felst í stækkun efnistökusvæði í Lambafelli (E3). Auglýst gögn eru skipulagsuppdráttur, skipulagsgreinargerð, umhverfisskýrsla og athugasemdir Skipulagsstofnunar í bréfi dags. 5. maí 2008.
Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn og í sýningarrými Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 20. júní til 18. júlí 2008.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 1. ágúst 2008. Skila skal skriflegum athugasemdum til bæjarskrifstofu Ölfuss. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna fyrir auglýstan frest telst samþykkur henni.

Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.



Auglýsing um skipulag - Flóahreppur
Sveitarstjórn Flóahrepps auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Flóahrepps 2006-2018, í fyrrum Villingaholtshreppi ásamt umhverfisskýrslu.

Tillagan, sem er auglýst með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, verður til sýnis á skrifstofu Flóahrepps í Þingborg frá 19. júní 2008 til og með 31. júlí 2008. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu skila skriflegum athugasemdum til Flóahrepps fyrir 1. ágúst 2008. Hægt er að skoða skipulagstillöguna á vefsíðunni www.floahreppur.is
. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innantilskilins frests telst samþykkur henni.

Sveitarstjóri Flóahrepps

Margrét Sigurðardóttir.


Auglýsing um skipulag - Fjallabyggð
Sveitarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með breytingu á Aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin felst í að svæði ofan við Hornbrekku (dvalarheimili aldraðra) sem er skilgreint sem íbúðir verði skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota þar sem gert er ráð fyrir snjóflóðavarnargarði. Breytingin er sýnd á uppdrætti í mkv. 1:5000 og í greinargerð/umhverfisskýrslu, dags. 4. júní 2008.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4, Ólafsfirði og jafnframt í sýningarrými Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, Reykjavík.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 30. júlí 2008. Athugasemdir skulu vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna fyrir auglýstan frest telst samþykkur henni.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Fjallabyggð.



Auglýsing um skipulag - Eyjafjarðarsveit
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005 - 2025 með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin felst í stofnun iðnaðarlóðar á eyrum Þverár ytri. Lóðin er ca.
5.7 ha og þar er fyrirhugað að reisa jarðgerðarstöð fyrir lífrænan úrgang. Við breytinguna minnkar efnistökusvæði um ca. 1.3. ha og landbúnaðarsvæði um ca. 4.4. ha. Breytingin er sýna á uppdrætti í stærðinni A2 og er umhverfisskýrsla dags. í maí 2008
meðfylgjandi uppdrættinum.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar frá og með 5. júní til og með 3. júlí 2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 17. júlí 2008. Athugasemdir skulu vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna fyrir
auglýstan frest telst samþykkur henni.

Syðra-Laugalandi 4. júní 2008
f.h. sveitarstjórnar, Guðmundur Jóhannsson.


Auglýsing um skipulag - Vopnafjarðarhreppur
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, ásamt umhverfisskýrslu sem felst í endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir tímabilið 1980-2000.
Tillagan, sem er auglýst með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15 frá 8.00-16.00 alla virka daga frá 11. júní 2008 til og með 23. júlí 2008. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu gera það með skriflegum hætti í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 23. júlí 2008. Hægt er að skoða skipulagstillöguna á vefsíðunni
www.vopnafjardarhreppur.is. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innantilskilins frests telst samþykkur henni.

Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps


Auglýsing um skipulag - Grundafjarðarbær
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar auglýsir hér með, samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum eftir athugasemdum við Aðalskipulag Grundarfjarðar-dreifbýli 2003-2015.

Aðalskipulag Grundarfjarðar-dreifbýli 2003-2015 nær til alls lands sveitarfélagsins utan marka aðalskipulags Grundarfjarðar-þéttbýli 2003-2015. Mörkuð er stefna varðandi landnotkun, samgöngur, veitur, byggð og vernd með meiru. Skilgreind eru svæði fyrir landbúnað, óbyggð svæði, svæði frístunda- og íbúðarbyggðar. Afmörkuð eru efnistökusvæði, athafnasvæði, iðnaðar- og hafnarsvæði. Einnig eru skilgreind svæði fyrir þjónustustofnanir og sorpförgun mm. Þá eru svæði friðlýsingar og náttúruminja skilgreind auk þess sem afmörkuð eru svæði þjóðminjaverndar, hverfisverndar, vatnsverndar með meiru.

Tillagan ásamt greinargerð er til sýnis á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30 og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 í Reykjavík á skrifstofutíma, frá og með 23. maí nk. til og með 20. júní 2008.
Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögun til og með 4. júli 2008. Skila skal skriflegum athugasemdum til umhverfisnefndar bæjarins á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar, teljast þeim samþykkir.

Grundarfirði, 20. maí 2008.

Hjörtur Hans Kolsöe
skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar.



Auglýsing um skipulag - Rangárþing eystra
Aðalskipulag Rangárþings eystra 2003-2015, tillaga að breytingu.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra auglýsir hér með breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra, 2003-2015 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn til auglýsingar 13. mars samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga.

Í breytingartillögunni felst eftirfarandi:

  • Lagning jarðstrengs og ljósleiðara meðfram þjóðvegi 1 á milli Hvolsvallar og Hellu.
  • Lagning tveggja sæstrengja (FARICE) sem land taka í landi Hallgeirseyjar.
  • Landnotkunarbreyting á 0,25 ha landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði  Q2 undir landtökustöð fyrir sæstrengina.
  • Lagning ljósleiðara suðaustur um Landeyjasand sem tengist þar ljósleiðara sem fyrir er.
  • Lagning tveggja rafstrengja og vatnslagnar frá Bakka til Vestmannaeyja.
  • Vatnsveitulögn milli Hvolsvallar og Hvítaness.
  • Efnistökusvæði í Seljalandsheiði og breytt afmörkun hverfisverndarsvæðis H9.

Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofu Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, frá og með föstudeginum 9. maí til og með föstudagsins 6. júní 2008.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til föstudagsins 20. júní 2008.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, 860 Hvolsvelli.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frest telst samþykkur henni.

Sveitarstjóri Rangárþings eystra



Auglýsing um skipulag - Svalbarðsstrandarhreppur
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020, ásamt umhverfisskýrslu (kafli 7.2 í greinargerð) sem felst í endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir tímabilið 1994-2014.
Tillagan, sem er auglýst með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, verður til sýnis á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps í Ráðhúsinu, Svalbarðseyri á venjulegum opnunartíma frá og með fimmtudeginum 15. maí 2008 til og með fimmtudagsins 12. júní 2008. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu gera það með skriflegum hætti í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 26. júní 2008. Hægt er að skoða skipulagstillöguna á vefsíðunni www.teikna.is. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innantilskilins frests telst samþykkur henni.

Sveitarstjórinn í Svalbarðsstrandarhreppi


Auglýsing um skipulag - Sandgerðisbær
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 1997-2017 með síðari breytingum og tillaga deiliskipulags hátæknigarðs í Rockville og deiliskipulag nýs íbúðarsvæðis austan Stafnesvegar og sunnan Sandgerðisvegar.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 1997-2017 með síðari breytingum samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingin felst í að fyrrum varnarsvæði eru tekin í borgaraleg not og hluti þeirrar landnotkunar sem felld var út með aðalskipulagsbreytingu dags. 22. febrúar 2006 innleidd að nýju.
Jafnframt er auglýst til kynningar deiliskipulagstillaga að nýju íbúðarsvæði í Sandgerðisbæ sem samþykkt var í húsnæðis-, byggingar- og skipulagsráði Sandgerðisbæjar þann 6. maí s.l. og deiliskipulagstillaga hátæknigarðs í Rockville sem samþykkt var 23. apríl sl., að auglýsa samhliða aðalskipulagstillögu, tillögurnar eru auglýstar skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Deiliskipulagstillagahátæknigarðs í Rockville.
Um er að ræða 53 ha stórt landssvæði og er gert ráð fyrir 36 misstórum atvinnulóðum undir uppbyggingu hátækniiðnaðar og athafnastarfsemi, auk lóða fyrir verslun og þjónustu. Stærð lóða er allt frá 0,25 ha í 5,9 ha. Eiginleika svæðisins sem opið heiðalandslags er viðhaldið með því að halda óbyggðum svæðum á milli lóða.
Skipulagning atvinnusvæðis á Rockvillesvæðinu eru í samræmi við óskir atvinnuráðs Sandgerðisbæjar um uppbyggingu hátækniþorps.

Deiliskipulagstillaga íbúðarsvæðis sunnan Sandgerðisvegar og austan Stafnesvegar.
Umrætt svæði er sunnan fyrirhugaðs Sandgerðisvegar og austan Stafnesvegar. Austan íbúðarsvæðis eru Draugaskörð. Tillagan er í samræmi við skipulagsáherslur gildandi aðalskipulagi.
Um er að ræða íbúðarsvæði með leikskóla og samfelldu opnu útivistarsvæði. Íbúðabyggðin skiptist í tvo hluta, þann nyrðri og syðri og liggur útivistarsvæðið þar á milli. Aðkomur að hverfinu verða að norðan um nýja safngötu sem liggja mun til suðurs frá fyrirhuguðum Sandgerðisvegi og að vestan verða tvær aðkomur að hverfinu frá Stafnesvegi. Safngata liggur í gegnum hvorn hluta hverfisins og er ekki gert ráð fyrir umferð bíla þar á milli.
Fjöldi íbúða er 273, með einnar til tveggja hæða byggð fjölbreyttra íbúðargerða og áherslu á sérbýli.

Breytingartillaga aðalskipulags og deiliskipulagstillögur verða til sýnis á bæjarskrifstofunum í Vörðunni, Miðnestorgi 3, Sandgerði og í sýningarsal Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með föstudeginum 16. maí nk. til föstudagsins 13. júní 2008. Tillögurnar er einnig hægt að skoða á heimasíðu Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is og á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar www.vso.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með föstudeginum 27. júní 2008. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Sandgerðis, Vörðunni, Miðnestorgi 3, Sandgerði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Bæjarstjórinn í Sandgerðisbæ


Auglýsing um skipulag - Bæjarhreppur
Tillaga að breytingum á aðalskipulagi Bæjarhrepps 1995-2015.
Hreppsnefnd Bæjarhrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Bæjarhrepps 1995-2015 samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Breytingin felst í eftirfarandi atriðum:
1. Svæði fyrir opinbera þjónustu stækkar til norðurs.
2. Opin svæði til sérstakra nota breytist þannig að áður áætlað tjaldsvæði fellur út.
3. Tjaldsvæði færist niður á grundirnar og þar verður einnig lítlill púttvöllur. Þar fellur íbúðarsvæði niður.
4. Gert er ráð fyrir svæði fyrir frístundabyggð upp með Lækjadal.
5. Gert er ráð fyrir tveimur nýjum íbúðarhúsalóðum, önnur er norðan Lyngbrekku en hin vestan Sjónarhóls.
6. Gert er ráð fyrir sjóvarnargarði á norðanverðri og sunnanverðri eyrinni.
7. Gert er ráð fyrir athafnasvæði upp á melunum, nyrst á svæðinu.
8. Gert er ráð fyrir flotbryggju suður af verslunarhúsinu.

Deiliskipulag á Borðeyri.

Hreppsnefnd Bæjarhrepps auglýsir jafnframt tillögu að nýju deiliskipulagi (heildarendurskoðun og stækkun svæðis) á Borðeyri samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingar frá gildandi deiliskipulagi eru hinar sömu og fram koma í breytingu á aðalskipulagi Bæjarhrepps 1995-2015.

Skipulagstillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Bæjarhrepps á Borðeyri frá og með 2. maí 2008 til 20. júni 2008, einnig verða skipulagstillögurnar til sýnis á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að skila inn athugasemdum, er til 20.júni 2008. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Bæjarhrepps.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við skipulagstillögurnar, fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur þeim.

Oddviti Bæjarhrepps,

Sigurður Kjartansson



Auglýsing um skipulag - Garðabær
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu átillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 skv. 1. mgr. 21. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingartillagan nær til svæðis í norðanverðu Garðaholti frá hraunjaðri Gálgahrauns norðan við Garðastekk að landi jarðarinnar Selsskarðs.
Tillagan gerir gerir ráð fyrir því að lega fyrirhugaðrar stofnbrautar, Álftanesvegar, færist til suðurs frá því sem núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir inn á svæði sem skilgreint er fyrir blandaða byggð. Mest færist vegurinn um 150 metra til suðurs og tilfærslan nær til alls um 1,5 kílómetra kafla á veginum. Með breytingunni mun vegurinn á þessum kafla liggja í sama vegstæði og núverandi vegur á um þriðjungi leiðarinnar. Það svæði sem vegstæðið og svæði fyrir blandaða byggð náði til og verður norðan vegarins breytist í blandaða lágreista byggð fyrir íbúðir og þjónustustofnanir.
Tillagan um breytingu á aðalskipulaginu felur í sér framkvæmd við gerð stofnbrautarinnar Álftanesvegar sem fellur undir ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum og er því háð lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Álftanesvegur ásamt lengingu Vífilstaðavegar fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum árin 2001-2002. Því er umhverfisskýrsla sem unnin hefur verið af verkfræðistofunni Mannviti kynnt ásamt breytingartillögunni.

Breytingartillagan kallar einnig á breytingu á svæðisskipulagi höfuborgarsvæðisins og hefur bæjarstjórn samþykkt hana sem óverulega skv. 2. mgr. 14. greinar skipulags-og byggingarlaga.
Svæðisskipulagsbreytingin ásamt umhverfisskýrslu er kynntar samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu og matsskýrslu Álftanesvegar frá 2002 liggja frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 18. apríl til og með 30. maí 2008 og eru ennfremur aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar,
www.gardabaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 30. maí 2008. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar



Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 samþykkta í bæjarstjórn 18. mars 2008.
Breytingin fellst í því að á athafnasvæði 1.24.9A við Austursíðu verður blönduð landnotkun, athafna- og verslunarsvæði merkt 1.24.9A/V.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 11. apríl til 23. maí svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar:
www.akureyri.is undir: „Stjórnkerfið/Skipulagstillögur“.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 föstudaginn 23. maí 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 11. apríl 2008.
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar



Auglýsing um skipulag -Sveitarfélagið Ölfus
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss, 2002-2014, tillaga að breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014, virkjanasvæði við Hverahlíð og Bitru, línulagnir, tvöföldun Suðurlandsvegar og mislæg gatnamót.
Bæjarstjórn Ölfuss heimilar auglýsingu á aðalskipulagsbreytingu er nær til breytinga á aðalskipulaginu við Hverahlíð, Bitru og á þjóðvegi nr. 1, samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum. Auglýsingin er skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdráttur og umhverfisskýrsla ásamt athugasemdum sem Skipulagsstofnun lagði fram með bréfi 4. mars 2008.

Breytingartillagan tekur til:
    • 285 ha opnu, óbyggðu svæði á Bitru/Ölkelduhálsi sem að hluta er á náttúruminjaskrá og einnig skilgreint sem grannsvæði vatnsverndar, er breytt í iðnaðarsvæði (I2) fyrir jarðgufuvirkjun.
    • 320 ha opnu, óbyggðu svæði við Hverahlíð, sem að hluta er skilgreint sem hverfisverndarsvæði og jafnframt sem fjarsvæði vatnsverndar, er breytt í iðnaðarsvæði (I18) fyrir jarðgufuvirkjun.
    • Landnotkunarbreytingin gerir að felld er niður vatnsvernd, grann- og fjarsvæði á 4.160 ha svæði og hverfisvernd á um 320 ha svæði.
    • Vegna jarðgufuvirkjunarinnar er gert ráð fyrir nýjum háspennulínu/jarðstrengjum; Bitrulína 1 og 2 (220 kV jarðstrengir frá Bitru að tengivirki á Hellisheiði) Hverahlíðarlínur 1 og 2 (220 kV jarðstrengir frá Hverahlíð að tengivirki á Hellisheiði) og Hellisheiðarlína 2 (220 kV) frá tengivirki á Hellisheiði að Kolviðarhóli. Núverandi Búrfellslína 2 mun verða endurbyggð að hluta frá tengivirki á Hellisheiði að Kolviðarhóli og mun heita Hellisheiðarlína 1 á þeirri leið. Frá tengivirki á Kolviðarhóli mun Kolviðarhólslína 1 (220 kV sem er gamla Búrfellslína 3 frá Kolviðarhól að Geithálsi samsíða Búrfellslínu 3) verða endurbyggð og Kolviðarhólslína 2 (220 kV samsíða Búrfellslínu 3 frá Kolviðarhóli að Sandskeiði) verður reist í línustæði Sogslínu 2. Jafnframt verður Sogslína 2 felld niður (fjarlægð).
    • Gert er ráð fyrir tvöföldun (2+2) Suðurlandsvegar, þjóðvegar nr. 1, í núverandi legu frá sveitarfélagsmörkum að vestan og austur að vesturmörkum Hveragerðis.
      Gert er ráð fyrir þremur nýjum mislægum gatnamótum og fjórum til fimm undirgöngum fyrir gangandi og eða ríðandi umferð. Eldri tengingar verða feldar niður, þannig að aðeins verða tengingar við mislægu gatnamótin. Mislæg gatnamót verða gegnt Bolöldum, við Hamragilsveg og austan Gígahnúksvegar auk Þrengslavegamóta sem þegar eru komin. Undirgögn verða við gatnamót Bolöldu, við gatnamót Hamragilsvegar, við gatnamót Gígahnúksvegar auk reiðganga við Ölkelduhálsveg.
    • Niðurrennslissvæði vestan Þrengslavegar er fellt niður og niðurrennslissvæði milli Suðurlandsvegar og Þrengslavegar minnkar, í heild er minnkun frá 49,8 ha í 38,2 ha.
Skipulagstillagan með greinargerð hefur tekið tillit til athugasemda umsagnaraðila.
Skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdráttur og umhverfisskýrsla hefur verið til umsagnar hjá Skipulagsstofnun. Með bréfi dagsettu 4. mars 2008 er Skipulagsstofnun með 13 ábendingar um skipulagsgreinargerðina, 5 ábendingar við skipulagsuppdrátt og 19 ábendingar við umhverfisskýrsluna.
Skipulagsgögn hafa verið lagfærð.
Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, frá og með 21. mars 2008 til 18. apríl 2008. Skipulagsgögn má sjá á heimasíðu www.landmotun.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við aðalskipulagið. Frestur til þess að skila þeim inn er til 2. maí 2008.

Sigurður Jónsson skipulags- og byggingarfulltrúi.
Auglýsing um skipulag - Eyjafjarðarsveit
Þrjár breytingar á aðalskipulagi.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með eftirfarandi breytingar á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005-2025 með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum:

1. Frístundasvæði í landi Rauðhúsa (FS17).

Lóðum á frístundasvæðinu verður fjölgað um eina úr 21 í 22. Viðbótarlóðin er 7.000 fm og skerðist opið svæði sem því nemur. Heildarstærð skipulagssvæðisins verður óbreytt.

2. Íbúðarsvæði í landi Reykhúsa (IS4-b).

Lóðum á íbúðarsvæðinu verði fjölgað um tvær úr 5 í 7. Heildarstærð svæðisins er óbreytt en meðalstærð lóða innan þess minnkar.

3. Íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (ÍS8).

Svæðið liggur við brekkuræturnar neðan Veigastaðavegar. Þar var áður frístundabyggð sem breytast mun í íbúðarbyggð. Breytingin felst í því að bætt er við einni íbúðarlóð við suðurmörk svæðisins og skerðist opið grænt svæði sem þar er skilgreint um 8552 fm. en það er stærð viðbótarlóðarinnar. Heildarfjöldi lóða verður 6 í stað 5 eins og er í gildandi skipulagi.

Tillögur þessar verða til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar frá og með 27. mars til og með 25. apríl 2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar er til og með 9. maí 2008. Athugasemdir skulu vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögurnar fyrir auglýstan frest telst samþykkur þeim.

Syðra-Laugalandi, 19. mars 2008.
F. h. Sveitarstjórnar,

Bjarni Kristjánsson sveitarstjóri.


Veruleg breyting á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 – 2024, Vatnsendahlíð - Þing, Kópavogi

Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins samþykkti 17. mars 2008 að auglýsa skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga breytingu á svæði í Vatnsendahlíð sem afmarkast af íbúðabyggð Þinga til norðurs, hesthúsasvæðis Kjóavalla til norðvesturs, sveitarfélagsmörkum Garðabæjar til vesturs og óbyggðu svæði til suðurs. Breytingartillagan tekur til 92,5 ha svæðis í Kópavogur austur, sem í gildandi svæðisskipulagi er skilgreint sem óbyggt svæði.
Í tillögunni felst að landnotkun á svæðinu verði breytt í byggðarreit fyrir blandaða byggð til 2024. Jafnframt er töflu 3.2 á bls. 48 í svæðisskipulagsgreinargerð breytt þannig að stærð atvinnuhúsnæðis á byggðarsvæði nr. 16 „Kópavogur austur, eykst um 15.000 m2 til loka skipulagstímabilsins. Einnig breytist tafla 3.1 á bls. 47 þannig að íbúðum fjölgar um 740.

Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofum sveitarfélaganna sem standa að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík á skrifstofutíma og hjá skrifstofu SSH í Kópavogi að Hamraborg 9, 2. hæð frá 27. mars 2008 til 25. apríl 2008. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna og umhverfismat hennar. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til skrifstofu SSH eigi síðar en kl. 15:00 föstudaginn 9. maí 2008. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001 – 2024.




Tillaga til breytingar á aðalskipulagi Vesturbyggðar
Sveitarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 19. desember 2007 að auglýsa skv 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar.
Breytingin tengist snjóflóðavörnum á Bíldudal þar sem byggður verður leiðigarður og snjóflóðarenna. Tillögur að breytingum á aðalskipulagi eru þessar: Opið svæði til sérstakra nota Ú9 stækkar að Lönguhlíð og að hluta til að Tjarnarbraut yfir svæði sem nú er skilgreint sem íbúðarsvæði. Á svæðinu verða stígar og skógrækt í tengslum við snjóflóðavarnargarðinn. Íbúðarsvæðið á milli Lönguhlíðar og Tjarnarbrautar verður skilgreint sem frístundabyggð með takmarkaðri nýtingu fyrir gistingu í samræmi við mat á snjóflóðahættu. Hættusvæði vegna ofanflóða er breytt í samræmi við framkvæmdir við snjóflóðavarnir.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði frá 7. febrúar 2008 til 6. mars 2008. Ennfremur eru tillögunar til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögunar. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Vesturbyggðar fyrir 20. mars 2008 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögunar innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Ragnar Jörundsson bæjarstjóri


Auglýsing um skipulag - AkureyrarkaupstaðurAuglýsing um skipulag - Vesturbyggð
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 samþykkta í bæjarstjórn 22. janúar 2008.

Breytingin gerir ráð fyrir að stofnanasvæði 2.52.8 S fyrir Sjúkrahús Akureyrar stækkar úr 7,8 ha í 7,9 ha og er mörkunum breytt í suðaustur horni þess. Íbúðasvæði 2.61.4. Íb minnkar að sama skapi.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 7. febrúar til 25. mars svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is undir: „Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur“.

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem mörk lóðar fyrir Sjúkrahús Akureyrar er skilgreind og gerð grein fyrir byggingasvæði til framtíðar og svæði fyrir líknardeild.
Athugasemdafrestur hennar er frá 7. febrúar til 25. mars 2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 þriðjudaginn 25. mars 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 7. febrúar 2008

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar
Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naustahverfis, svæðis norðan Tjarnarhóls, samþykkta í bæjarstjórn 22. janúar 2008. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.

Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Miðhúsabraut, Kjarnagötu, Tjarnarhóls og golfvallar. Tvær nýjar lóðir eru skilgreindar, annars vegar fyrir verslun og bensínstöð og hins vegar lóð fyrir þjónustusvæði. Verslunarhús má byggja á 1-2 hæðum og bensínstöð verður sjálfsafgreiðslustöð með tilheyrandi mannvirkjum. Þjónustuhús verður á einni hæð og á að þjóna íþróttavöllum og þjónustusvæði. Bílastæði fyrir stóra bíla verða gerð og gert er ráð fyrir upplýstum höggmyndagarði við Kjarnagötu.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 7. febrúar til 25. mars 2008 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is undir: „Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur“.

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem opið svæði til sérstakra nota, 3.21.7 O er minnkað og nýtt svæði fyrir verslun og þjónustu skilgreint.
Athugasemdafrestur hennar er frá 7. febrúar til 25. mars 2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 þriðjudaginn 25. mars 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 7. febrúar 2008

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 samþykkta í bæjarstjórn 22. janúar 2008.

Breytingin gerir ráð fyrir að opið svæði til sérstakra nota, 3.21.7 O, íþróttasvæði í Naustahverfi, er minnkað úr 9,8 ha í 7,3 ha. Nýtt 2 ha svæði fyrir verslun og þjónustu, 3.21.18 V er gert norðan þess.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 7. febrúar til 25. mars 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is undir: „Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur“.

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagsbreytingu skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem skilgreindar eru tvær lóðir á svæði 3.21.18 V fyrir verslun og bensínstöð annars vegar og hins vegar fyrir þjónustusvæði.
Athugasemdafrestur hennar er frá 7. febrúar til 25. mars 2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 þriðjudaginn 25. mars 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 7. febrúar 2008.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar
Auglýsing um skipulag - Akureyrarkaupstaður
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Sjúkrahúss Akureyrar við Eyrarlandsveg, samþykkta í bæjarstjórn 22. janúar 2008.

Deiliskipulagið nær til svæðis sem afmarkast af Þórunnarstræti til vesturs, Lystigarði til norðurs og grænu svæði til austurs og suðurs. Tillagan felur í sér að ákvörðuð eru mörk lóðar Sjúkrahúss Akureyrar og gerð grein fyrir byggingasvæði þess til framtíðar sem og svæði fyrir líknardeild.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 7. febrúar til 25. mars 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is undir: „Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur“.

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem stofnanasvæði 2.52.8 S er stækkað lítillega og íbúðarsvæði 2.61.4 Íb er minnkað að sama skapi.
Athugasemdafrestur hennar er frá 7. febrúar til 25. mars 2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 þriðjudaginn 25. mars 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Akureyri, 7. febrúar 2008

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar


Auglýsing um skipulag - uppsveitir Árnessýslu (Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur)
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 vegna tilfærslu Gjábakkavegar
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Í breytingunni felst eftirfarandi:
    • Hluti stofnbrautar fyrirhugaðs Gjábakkavegar færist til suðurs.
    • Tengibraut (1,7 km) er lögð vestan Blöndumýrar frá nýjum vegi að núverandi Gjábakkavegi.
    • Hverfisvernd í kringum Blöndumýri og Breiðumýri er endurskoðuð og gert ráð fyrir nýjum hverfisverndarsvæðum við Beitivelli og Laugarvatnsvelli.
    • Gert er ráð fyrir þremur nýjum efnistökusvæðum og staðsetning annarra efnisnáma er leiðrétt.
    • Svæði fyrir frístundabyggð í landi Eyvindartungu minnkar um 18 ha.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 21. desember 2007 til 14. janúar 2008. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á vefslóðinni www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna og skulu þær berast skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 14. janúar 2008.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.

Pétur Ingi Haraldsson
skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu.



Auglýsing um skipulag - Mosfellsbær
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingum á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024
Breytingar felast í fyrsta lagi í því að gert verði ráð fyrir nýrri, niðurgrafinni stofnæð hitaveitu frá Hellisheiðarvirkjun að Reynisvatnsheiði. Stofnæðin liggur á 7,9 km kafla innan marka aðalskipulags Mosfellsbæjar, en þar af eru 1,5 km á landi þar sem aðalskipulagi er frestað vegna óvissu um lögsögumörk. Svæðið sem lögnin fer um er skilgreint sem opið óbyggt svæði í aðalskipulagi og er jafnframt vatnsverndarsvæði.
Í öðru lagi verði gert ráð fyrir jarðstreng, Nesjavallalínu 2, frá Nesjavöllum að Geithálsi, samsíða Nesjavallavegi og Hafravatnsvegi. Lengd strengsins innan Mosfellsbæjar er 10 km og er svæðið sem hann fer um að mestu skilgreint sem opið óbyggt svæði en einnig að hluta sem landbúnaðarsvæði. Á 0,4 km kafla vestast er hann innan fjarsvæðis vatnsverndar. Samhliða aðalskipulagstillögunni eru skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 auglýstar til kynningar tvær umhverfisskýrslur, sem fjalla annarsvegar um umhverfisáhrif hitaveituæðarinnar og hinsvegar um umhverfisáhrif jarðstrengsins.

Tillöguuppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslurnar verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 20. desember 2007 til og með 31. janúar 2008, svo að þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta geti kynnt sér þessi gögn og gert við þau athugasemdir. Tillagan liggur einnig frammi á Skipulagsstofnun og er birt á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is
Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar eigi síðar en 31. janúar 2007. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Mosfellsbæ, 13. desember 2007.

Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar


Auglýsing um skipulag - miðhálendi Íslands
Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015, við Lakagíga og á aðliggjandi svæðum.
Auglýsingin er skv. 14. gr. a í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 með síðari breytingum. Jafnframt er tillagan í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.


Markmið breytinganna er að bæta aðgengi með betri vegum, merktum gönguleiðum og áningastöðum.
Gerð er breyting á vegi 1 Miklafellsvegi, leið inn að Miklafelli og Blængi og er vegurinn færður frá viðkvæmri náttúru og lagt til að nýi hluti fjallvegarins verði um jökulgarð á tiltölulega sléttu landi.
Gerð er breyting á gönguleiðinni Hólaskjól - Eldgjá - Skælingar - Sveinstindur - Lakagígar - Blágil og gönguleiðin færð frá viðkvæmu svæði við Kamba.
Núverandi skálasvæði við Blágil er fært um flokk og skráð sem fjallasel. Í Blágiljum verður aðstaða og dvalarsvæði landvarða og tjaldsvæði. Gert ráð fyrir nýju skálasvæði við Galta þar sem áætlað er að hafa upplýsingamiðstöð með móttöku ferðamanna, aðstöðu landvarða og snyrtiaðstöðu.
Með tillögunni er kynnt umhverfisskýrsla þar sem gert er grein fyrir helstu áhrifum tillögunnar á umhverfi sitt.
Breytingartillagan verður til sýnis á slóðinni www.halendi.is og á skrifstofutíma á eftirtöldum stöðum frá og með mánudeginum 17. desember til og með 14. janúar 2008.
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Landsbóksafni Íslands - Háskólasafni, Arngrímsgötu 3, Reykjavík.
Skaftárhreppi, Klausturvegi 15, Kirkjubæjarklaustri.
Sýslumanninum á Akureyri, Hafnarstræti 107, Akureyri.
Sýslumanninum á Höfn, Hafnarbraut 36, Höfn.
Sýslumanninum á Selfossi, Hörðuvöllum 1, Selfossi.
Sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18, Kópavogi.
Sýslumanninum á Ísafirði, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði.
Sýslumanninum í Borgarnesi, Bjarnarbraut 2, Borgarnesi.
Frestur til þess að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út á föstudeginum 28. janúar 2008. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu samvinnunefndar miðhálendis að Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.

Óskar Bergsson formaður samvinnunefndar miðhálendis
Auglýsing um skipulag - Reykjavíkurborg
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 - 2024

Geitháls - Reynisvatnsheiði

Lagning stofnæðar hitaveitu um Geitháls og Reynisvatnsheiði, Hellisheiðaræð.
Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 er gert ráð fyrir nýrri aðveituæð hitaveitu frá Hellisheiðarvirkjun að miðlunartönkum í Reynisvatnsheiði. Tillagan gerir grein fyrir legu stofnlagnarinnar innan Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir niðurgrafinni stofnlögn hitaveitu á um 2,5 km kafla, frá Hafravatnsvegi til vesturs sunnan Geitháls og til norðurs með vegi Orkuveitu Reykjavíkur að miðlunartönkunum á Reynisvatnsheiði. Lögnin mun fara um svæði sem skilgreint er sem athafnasvæði og opið svæði til sérstakra nota. Umrædd svæði eru að hluta á fjarsvæði vatnsverndar; fjarsvæði B, sbr. skilgreining í svæðisskipulagi vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að helgunarsvæði lagnarinnar verði allt að 15 m.
Nánar um tillögu og umhverfisáhrif vísast til kynningargagna.

Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8.20-16.15, frá 12. desember 2007 til og með 31. janúar 2008. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipogbygg Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 31. janúar 2008. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Reykjavík, 7. desember 2007. F. h. skipulagsstjóra Reykjavíkur,

Ann Andreasen


Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Álftanes
Aðalskipulag Álftaness 2005-2024. - Tillaga að breytingu.- Miðbærinn

Bæjarstjórn Álftaness hefur tekið aðalskipulag Álftaness til fyrri umræðu sbr. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum og auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Álftaness 2005-2024 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingartillagan nær m.a. til miðsvæðis, skóla- og íþróttasvæðis, Breiðumýrar og norðanverðs Sviðholts, Skólatúns og Suðurtúns og Suður- og Norðurnesvegar.
Breyting á staðfestum landnotkunaruppdrætti:
    • Lega Norðurnesvegar og Suðurnesvegar á svæðinu breytist.
    • Suðurhluti Breiðumýrar frá Birkiholti að Suðurnesvegi leggst af. Í staðinn kemur nýr aðkomuvegurvegur að stofnanasvæði, skólavegur, norðan við miðsvæði, milli Suðurtúns og miðsvæðis.
    • Miðsvæði sveitarfélagsins, blönduð byggð miðsvæðis og íbúðarsvæðis stækkar til vesturs, norðurs og austurs. Opið svæði austan við miðsvæði minnkar og opið svæði norðan við miðsvæði fer allt undir blandaða landnotkun. Til vesturs stækkar reiturinn inn á opið svæði til sérstakra nota L3. Einnig stækkar miðbæjarsvæði til norðurs aðeins inn á stofnanareit. Miðsvæði er samkvæmt gildandi skipulagi 12,3 ha en verður 15,7 ha.
    • Íbúðarsvæði við Sviðholt norðan Suðurnesvegar, vestur af blandaðri byggð tengist blandaðri byggð á miðsvæði.
    • Stofnanasvæði við skóla breytist.
    • Nýtt íbúðasvæði kemur austan við Suðurtún.
    • Opið svæði til sérstakra nota, sem áður var auðkennt sem L3 en er nú L4 sunnan við íbúðarsvæði breytir um lögun og stækkar til vesturs.
    • Aðalstígur sem tengir saman miðsvæðið beggja vegna Suðurnesvegar fer um undirgöng undir Suðurnesveg.
    • Lega reiðstíga breytist við Suður- og Norðurnesveg.
    • Aðalstíg vestan við Norðurnesveg og Álftanesveg er breytt.
    • Nýr aðalstígur liggur frá Breiðumýri að skóla- og íþróttasvæði norðan við íþróttahús.
Breyting á staðfestri greinargerð: Stefnumörkun og skipulagsákvæði grein 2.3.2 Leiðir. Gert er ráð fyrir að nýtingarhlutfall aukist sem hér segir: Rað- og parhús: 0,25-0,70 (áður 0,25-0,60). Lóðir þjónustustofnana með eða án íbúða: 0,66-2,50 (áður 0,66-1,20). Forsendur grein 3.2 Íbúðarsvæði - Yfirbragð og þéttleiki. Í kafla um íbúafjölda í gildandi aðalskipulagi er áætlaður íbúafjöldi árið 2024 um 3.100 íbúar. Í aðalskipulagsbreytingu þessari er gert ráð fyrir að íbúafjöldi verði um 3.850 íbúar árið 2024. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu. Nánar vísast til kynningargagna.

Aðalskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Álftaness, Bjarnastöðum, 225 Álftanesi og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, frá kl. 8.00 - 16.00 alla virka daga frá 10. desember 2007 til 7. janúar 2008. Tillöguna ásamt umhverfisskýrslu má einnig sjá á heimasíðu Sveitarfélagsins Álftaness, www.alftanes.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og þeim skilað til skipulags- og byggingarfulltrúa Álftaness, Bjarnastöðum. Frestur til að skila inn athugasemdum er til kl. 16.00, miðvikudaginn 23. janúar 2008. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

Samhliða auglýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Álftaness 2005-2024 er auglýst tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 sem er í skipulagsferli, nýtt deiliskipulag á miðsvæði Álftaness og tillögur að breytingum á deiliskipulagi skóla- og íþróttasvæðis, Suðurtúns og Breiðumýrar og norðanverðs Sviðholts.

Álftanesi, 7. desember 2007.

Bjarni S. Einarsson skipulags- og byggingarfulltrúi

Auglýsing um skipulag - Kópavogsbær
Veruleg breyting á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024, Glaðheimar, Kópavogi

Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins samþykkti 15. nóvember 2007 að auglýsa skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga breytingu á svæði sem afmarkast af Reykjanesbraut til vesturs, Bæjarlind til norðurs, Bæjarlind 1-3 og athafnasvæði við Akra- og Askalind til austurs og fyrirhuguðum Arnarnesvegi til suðurs. Í tillögunni felst að landnotkun á 12,6 ha opnu svæði til sérstakra nota (athafnasvæði Hestamannafélagsins Gusts) í „Kópavogi austur“, breytist í byggðarreit fyrir blandaða byggð. Jafnframt er töflu 3.2 á bls. 48 í svæðisskipulagsgreinargerð breytt þannig að stærð atvinnuhúsnæðis á byggðarsvæði nr. 16 „Kópavogur austur” eykst um 155,000 m² til loka skipulagstímabilsins. Einnig breytist tafla 3.1 á bls. 47 þannig að íbúðum fjölgar um 350. Með tillögunni er kynnt umhverfisskýrsla dagssett í nóvember 2007 og skýrsla um umferðarsköpun og áhrif á gatnakerfi dagssett í júlí 2007.
Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofum sveitarfélaganna sem standa að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík á skrifstofutíma og hjá skrifstofu SSH í Kópavogi að Hamraborg 9, 2. hæð frá 4. desember 2007 til 4. janúar 2008.
Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna og umhverfismat hennar. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til skrifstofu SSH eigi síðar en kl. 15.00 miðvikudaginn 18. janúar 2008. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024

Auglýsing um skipulag - Skaftárhreppur
Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkti á fundi sínum 20. ágúst 2007 að auglýsa til kynningar eftirfarandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps 2002-2014, samkvæmt 1. málsgrein 18. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum:

Skaftárhreppur – aðalskipulag 2002-2014. Breyting á aðalskipulagi í landi Dalshöfða.
Í breytingartillögunni felst að gert er ráð fyrir allt að 2,5 MW vatnsaflsvirkjun í Hverfisfljóti við Hnútu í landi Dalshöfða. Landnotkun við fyrirhugaða virkjun breytist úr óbyggðu svæði í iðnaðarsvæði (I2) sem verður 5 ha að stærð. Virkjunin felur í sér gerð stíflu og inntaksmannvirkja, lagningu þrýstipípu, byggingu stöðvarhúss og gerð frárennsliskurðar frá stöðvarhúsi út í Hverfisfljót. Nýr 7 km vegaslóði verður lagður í austurjaðri Skaftáreldahrauns frá heimreið Dalshöfða að stöðvarhúsi og mun vegurinn þvera Hverfisfljót með brú skammt suðvestur af Dalshöfða.
Skipulagsuppdráttur með greinargerð ásamt umhverfisskýrslu ”Umhverfismat - breytingar á aðalskipulagi í landi Dalshöfða í Skaftárhreppi” og umsögnum Umhverfisstofnunar dags 3. júlí 2007, Fornleifaverndar ríkisins, dags 22. maí 2007, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 23. mai 2007, Orkustofnunar, dags. 30. nóvember 2006 og 21. maí 2007, Landgræðslu ríkisins, dags. 7. júní 2007 og Landsnets/ Rarik, dags 11. júní og 12 júní 2007, munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15 á Kirkjubæjarklaustri og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 3 október 2007 til 31 október 2007.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Athugasemdum skal skila á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15, 880 Kirkjubæjarklaustur, í síðasta lagi 14. nóvember 2007 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Skaftárhrepps




Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 11. september 2007, að auglýsa skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 til samræmis við breytingu á deiliskipulagi Ægisbrautar, sem gerð er vegna nánari útfærslu fráveitukerfis en fyrir lá við gerð gildandi deiliskipulags og aðalskipulags.
Breytingin felst í að lóð fyrir dælu- og hreinsistöð fráveitu við Ægisbraut er stækkuð til austurs á kostnað óbyggðs svæðis og gert er ráð fyrir nýrri lóð fyrir dælustöð við Stillholt, skammt austan Ægisbrautar. Legu stofnstígs sjávarmegin við lóð hreinsistöðvarinnar er breytt til samræmis svo og stærð opins svæðis til sérstakra nota við Ægisbraut vegna nýrrar dælustöðva.
Einnig er gerð minni háttar breyting á afmörkun hverfisverndarsvæðis til samræmis við stækkun lóðardælustöðvarinnar, sem ekki hefur áhrif á uppgefið flatarmál svæðisins.

Aðalskipulagstillagan er til sýnis á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, Akranesi og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 24. september 2007 til og með 22. október 2007. Tillaga að breytingu deiliskipulagsins liggur eingöngu frammi á Akranesi. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 5. nóvember 2007 og skulu þær berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Akranesi, 17. september 2007.

Þorvaldur Vestmann

sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar.





Auglýsing um tillögu að Svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum 2007-2025
Samvinnunefnd um svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum auglýsir hér með til kynningar tillögu að Svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum sem liggja utan marka Svæðisskipulags miðhálendis Íslands 2015.
Skipulagssvæðið er allt land sveitarfélaganna Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveitar, Aðaldælahrepps og Norðurþings sem liggur utan afmörkunar svæðisskipulags miðhálendisins. Í skipulagstillögunni er sett fram stefna um verndun og nýtingu háhitasvæða og flutningslínur rafmagns á öllu skipulagssvæðinu, en meginviðfangsefni hennar er þó afmarkað svæði sem nær yfir land Þeistareykja, Gjástykkis, Kröflu og Bjarnarflags. Þar eru sett fram skipulagsákvæði um orkuvinnslu og mannvirki, vegi, línur og aðrar lagnir annarsvegar og verndarákvæði vegna náttúrufars og minja hinsvegar.
Skipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofum sveitarfélaganna fjögurra, að Hlíðarvegi við Reykjahlíð í Skútustaðahreppi, Kjarna á Laugum í Þingeyjarsveit, Iðjugerði í Aðaldal og Ketilsbraut 7-9 á Húsavík og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 18. september til 16. október 2007. Tillagan verður einnig aðgengileg á vefsíðunni http://teikna.is/ á sama tíma.
Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með þriðjudagsins 30. október 2007. Skila skal skriflegum athugasemdum til samvinnunefndarinnar til formanns nefndarinnar á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.

Húsavík 10. september 2007.
Gaukur Hjartarson
Formaður samvinnunefndar um svæðisskipulag háhitasvæða







Framkvæmdir til kynningar skv. lögum mat á umhverfisáhrifum
Tillögur að matsáætlunum
Matsskýrslur







 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is