| | UMHVERFISMAT ÁÆTLANA
Umhverfismat (Strategic Environmental Assessment, SEA) er verklag eða aðferð við áætlanagerð sem er ætlað að tryggja að tekið sé tillit til sjónarmiða um umhverfisvernd og sjálfbæra þróun. Í umhverfismati áætlana er lagt mat á umhverfisáhrif þeirra stefnu sem viðkomandi áætlun felur í sér. Matið er sett fram í umhverfisskýrslu, sem verður hluti af eða fylgiskjal viðkomandi áætlunar. Að matinu skal vinna í samráði við hagsmunaaðila og umhverfisskýrsla skal lögð fram til opinberrar kynningar. Umhverfismatið er á ábyrgð þess sem ber ábyrgð á viðkomandi áætlun og skal unnin samhliða.
Lög um umhverfismat áætlana
Lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 öðluðust gildi þann 29. júní sl. Með lögunum er lögfest hér á landi tilskipun Evrópusambandsins nr. 2001/42/EB um umhverfismat tiltekinna skipulags- og framkvæmdaáætlana.
Leiðbeiningar um umhverfismat áætlana
Ætlaðar öllum þeim sem koma að umhverfismati áætlana, s.s. stjórnvöldum, ráðgjöfum og almenningi. Notendur leiðbeininganna eru hvattir til að senda Skipulagsstofnun ábendingar um það sem betur má fara til skipulag@skipulag.is. Ráðgjafafyrirtækið Alta ehf. vann leiðbeiningarnar fyrir og í samráði við Skipulagsstofnun.
Í leiðbeiningariti Skipulagsstofnunar um gerð aðalskipulags er fjallað um umhverfismat skipulagstillagna. Þar er tekið mið af umhverfismati aðalskipulagstillagna, en þær aðferðir og nálgun sem þar er kynnt má einnig nota þegar umhverfisáhrif annarra áætlana eru metin.
Tilskipun Evrópusambandsins um umhverfismat áætlana
Árið 2001 samþykkti Evrópusambandið tilskipun um umhverfismat áætlana (Directive 2001/42/EC on the assessment of the effects of certain plans and programmes on the environment) sem á að tryggja að umhverfisáhrif skipulags- og framkvæmdaáætlana séu metin áður en áætlanirnar hljóta endanlega afgreiðslu.
Aðrar upplýsingar um umhverfismat áætlana
Skipulagsstofnun hefur gefið út skýrslu um forsendur lögleiðingar tilskipunar ESB hér á landi:
|
|