Fréttir


16.4.2018

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 hefur verið staðfest

Skipulagsstofnun staðfesti 6. apríl 2018 Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn Garðabæjar 5. október 2017.

Um er ræða endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins og mun Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 og Aðalskipulag Álftaness 2005-2024 falla úr gildi með gildistöku hins nýja aðalskipulags.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.