Fréttir


  • Alifuglabú

17.3.2016

Alifuglabú á vegum Brúneggja ehf. á Kjalarnesi

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að alifuglabú með 35.550 eldisstæðum til eggjaframleiðslu í Brautarholti 5 á Kjalarnesi skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.  

Ákvörðunin er að finna hér en hún liggur einnig frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 19. apríl 2016.