Fréttir


25.9.2019

Drög að reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags

Drög að reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða nýja reglugerð á grundvelli laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða. Lögin gera ráð fyrir að unnið verði strandsvæðisskipulag við strendur Íslands, í fyrsta skipti hér á landi. Strandsvæðisskipulag er unnið fyrir tiltekið afmarkað strandsvæði og þar eru sett fram markmið og ákvarðanir um framtíðarnýtingu og vernd á svæðinu og þær framkvæmdir sem geta fallið að nýtingu þess. 

Drögin má nálgast hér. Frestur til að senda umsagnir er til 4. október.