Fréttir


2.1.2017

Efnistaka við Ljósá í Reyðarfirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að efnistaka Fjarðabyggðar við Ljósá í Reyðarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til  6. febrúar 2017.