Fréttir


1.7.2016

Eyðing á áhættuvefjum úr sláturdýrum við sláturhús Norðlenska ehf. á Akureyri

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppsetning á búnaði til eyðingar á áhættuvefjum úr sláturdýrum við sláturhús Norðlenska ehf. á Akureyri, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000. Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér .

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 2. ágúst 2016.