Fréttir


14.7.2017

Fiskeldi í rannsóknaskyni að Árleyni 2a, Reykjavík

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fiskeldi í rannsóknaskyni á vegum Matís ohf. skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Framkvæmdin er í C-flokki í 1. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér. Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. ágúst 2017.