Fréttir


25.3.2019

Framleiðsluaukning um 30 tonn í eldisstöð N-lax á Laxamýri, Norðurþingi

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að 30 tonna framleiðsluaukning í eldisstöð N-lax á Laxamýri, Norðurþingi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 29. apríl 2019.