Fréttir


20.2.2018

Þjónustumiðstöð í Landmannalaugum

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging þjónustumiðstöðvar í Landmannalaugum skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér .

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. mars 2018.