Fréttir


16.6.2017

Meðhöndlun og geymsla efna með náttúrulega geislun í Hellisheiðarvirkjun, Sveitarfélaginu Ölfusi

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að ofangreind framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 17. júlí 2017.