Fréttir


7.8.2015

Eyðing sláturúrgangs KS í Skagafirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að ofangreind starfsemi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eyðing sláturúrgangs í Kjötafurðastöð KS, Skagafirði skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 14. september 2015.