Fréttir


8.9.2015

Fiskeldisstöðin Fellsmúla, breyting á framleiðslu, Rangárþingi Ytra

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á framleiðslu í fiskeldisstöðinni Fellsmúla skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til  8. október 2015.