Fréttir


20.11.2015

Landeyjahöfn

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun dýpkunar- og losunarsvæðis við Landeyjahöfn skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.  

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28 . desember 2015 .