Fréttir


17.2.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar vegna verslunar- og þjónustu á Rauðuskriðu

Skipulagsstofnun staðfesti þann 17. febrúar 2017 breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. nóvember 2016.

Í breytingunni felst að svæði fyrir verslun og þjónustu er stækkað um 1,07 ha fyrir starfsmannaíbúðir í tengslum við Hótel Rauðuskriðu.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin öðlast gildi við birtingu á auglýsingu um staðfestinguna í B deild Stjórnartíðinda.

Hægt verður nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar eftir að breytingin hefur öðlast gildi.