Fréttir


19.4.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps, Karlsstaðir, ferðaþjónusta

Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. apríl 2017 breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. mars 2017.

Í breytingunni felst að verslun og þjónusta er heimiluð í landi Karlsstaða. Gert er ráð fyrir rekstri í ferðaþjónustu með  gistingu fyrir allt að 34 gesti, veitingasal og viðburðarými í eldra húsnæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Auglýsing um staðfestinguna mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda innan tíðar og með því öðlast gildi.

Í kjölfarið verður hægt að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.