Fréttir


24.6.2010

Neysluvatnslögn Flóahrepps frá Selfossi að Ruddakróki

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning neysluvatnslagnar frá Selfossi að Ruddakróki, Flóahreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 29. júlí 2010.