Fréttir


23.9.2010

Skálasvæði við Hrafntinnusker, Rangárþingi ytra

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdir á skálasvæði við Hrafntinnusker, Rangárþingi ytra

skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.

 

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 25. október 2010.