Fréttir


4.11.2010

Norðausturvegur, breytt lega og ný tenging við þéttbýlið á Vopnafirði

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Norðausturvegur, breytt lega og ný tenging við þéttbýlið á Vopnafirði, Vopnafjarðarhreppi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til  6. desember 2010.

                                                                                       Skipulagsstofnun