Fréttir


8.7.2011

Endurvinnsla Efnaeimingar ehf. í Höfnum, Reykjanesbæ

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurvinnsla Efnaeimingar ehf.  í Höfnum, Reykjanesbæ skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 15. ágúst 2011.