Fréttir


1.3.2011

Förgun affallsvökva frá Svartsengi og Bláa lóninu, Grindavíkurbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar 

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að förgun affallsvökva frá Svartsengi og Bláa lóninu skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 15. ágúst 2011.