Fréttir


13.7.2011

Förgun affallsvökva frá Svartsengi og Bláa lóninu, Grindavíkurbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að förgun affallsvökva frá Svartsengi og Bláa lóninu, Grindavíkurbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 15. ágúst 2011.