Fréttir


21.7.2011

Rjúkandavirkjun í Snæfellsbæ, endurnýjun og stækkun

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurnýjun og stækkun Rjúkandavirkjunar í Snæfellsbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.br.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 23. ágúst 2011.