Fréttir


10.8.2011

Undirgöng undir Reykjanesbraut á móts við Straumsvík, Hafnarfjarðarbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmd

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að bygging undirganga á mótum Reykjanesbrautar og Víkurgötu (afleggjara að álverinu í Straumsvík) og gerð að- og fráreina við göngin, Hafnarfjarðarbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 107/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur  til 12. september 2011.