Fréttir


14.12.2011

Tengibraut á Hellu, Dynskálar-Miðvangur

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á tengibraut á Hellu, Dynskálar-Miðvangur, Rangarþingi ytra skuli ekki  háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 23. janúar 2012.