Fréttir


29.12.2011

Ljósleiðarasæstrengur um Grindavíkurdjúp og Selvogsgrunn að Mölvík við Grindavík

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matskyldu.

Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning ljósleiðarasæstrengs um Grindavíkurdjúp og Selvogsgrunn að Mölvík við Grindavík, Grindavíkurbæ skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 6. febrúar 2012.