Fréttir


10.2.2012

Eldi á bleikju í Galtalæk, Rangárþingi ytra

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (sbr. 25. gr. laga nr. 131/2011) og er kærufrestur til 12. mars 2012.