Fréttir


11.4.2012

Allt að 7.000 tonna ársframleiðsla á eldisfiski í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi, Ísafjarðarbæ, Strandabyggð og Súðavíkurhreppi

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að allt að 7.000 tonna ársframleiðsla á eldisfiski í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi (blandað eldi þorsks og laxfiska eða eldi einnar tegundar), Ísafjarðarbæ, Strandabyggð og Súðavíkurhreppi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (sbr. 25. gr. laga nr. 131/2011) og er kærufrestur til 14. maí 2012