Fréttir


3.8.2012

Fyrstu drög að samræmdri stefnu ríkisins um skipulagsmál til kynningar

Landsskipulagsstefna - samræmd stefna

Skipulagsstofnun hefur tekið saman drög að samræmdri stefnu ríkisins um skipulagsmál. Drögin verða kynnt og rædd á samráðsfundinum 17. ágúst næstkomandi. Sá fyrirvari er hér hafður á að skjalið kann að taka breytingum og verður sérstakalega tilkynnt um það.

Skipulagsstofnun óskar hér með eftir ábendingum og athugasemdum við þessi drög, með það að markmiði að eiga þess kost að betrumbæta þau áður en tillaga að landsskipulagsstefnu verður auglýst í haust. Hægt er að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum í netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is fyrir 1.sept. ( 2012).

Allar athugasemdir verða birtar á heimasíðunni og þær nýttar við vinnslu samræmdrar stefnu, en þeim sem gera athugasemdir verður ekki svarað sérstaklega.