Fréttir


3.8.2012

Greinargerð um stöðu og þróun skipulagsmála - drög

Drög til kynningar

Skipulagsstofnun hefur tekið saman yfirlit um stöðu og þróun skipulagsmála sveitarfélaga, í samræmi við reglugerð um landsskipulagsstefnu. Í yfirlitinu er fjall um íbúaþróun eftir landshlutum og áætla landnotkun eftir flokkum samkvæmt alskipulagi. Þá er fjall um alskipulagsáætlanir sem stjórntæki og hvort og hvernig sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi.

Skipulagsstofnun óskar hér með eftir ábendingum og athugasemdum við þessi drög, með það að markmiði að eiga þess kost að betrumbæta greinargerðina áður en tillaga að landsskipulagsstefnu verður auglýst í haust. Hægt er að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum í netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is fyrir 1.sept. ( 2012).

Allar athugasemdir verða birtar á heimasíðunni og þær nýttar við vinnslu greinargerðarinnar, en þeim sem gera athugasemdir verður ekki svarað sérstaklega.