Fréttir


14.9.2012

Rannsóknaboranir í Eldvörpum, Grindavíkurbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að borun rannsóknahola í Eldvörpum, Grindavíkurbæ, skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum m.s.br.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 16. október 2012.