Fréttir


23.11.2012

Fráveita affallsvatns frá orkuverinu í Svartsengi til sjávar, Grindavíkurbæ

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fráveita affallsvatns frá orkuverinu í Svartsengi til sjávar, Grindavíkurbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugvegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 27. desember 2012.