Fréttir


20.3.2013

Breytt lega Axarvegar frá Háubrekku að Reiðeyri, Djúpavogshreppi

Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breytt lega Axarvegar milli Háubrekku og Reiðeyrar í Berufjarðardal í Djúpavogshreppi skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 23. apríl 2013.