Fréttir


30.8.2013

Lagning 66 kV jarðstrengs í Fáskrúðsfirði og 132 kV jarðstrengs í Reyðarfirði og Eskifirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum
 

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning 66 kV jarðstrengs í Fáskrúðsfirði og 132 kV jarðstrengs í Reyðarfirði og Eskifirði skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 1. október 2013.