Fréttir


31.10.2013

Selfoss-Þorlákshöfn. 66kV jarðstrengur og ljósleiðari

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning jarðstrengs og ljósleiðara frá Selfossi til Þorlákshafnar skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 2. desember 2013.