Fréttir


30.1.2014

Framleiðsluaukning á regnbogasilungi og þorski í 1.200 tonn á vegum ÍS 47 ehf. í Önundarfirði

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnunar hefur tekið ákvörðun um að aukið fiskeldi ÍS 47 ehf. á Önundarfirði, Ísafjarðarbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 ,105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 3. mars 2014..