Fréttir


27.3.2014

Breyting á legu Meðallandsvegar í Skaftárhreppi

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun telur ekki tilefni til að framkvæmdirnar verði háðar mati.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á legu Meðallandsvegar á 1,3 km kafla við Efri-Steinsmýri í Skaftárhreppi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 5. maí 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má einnig skoða hér.