Fréttir


15.4.2014

Framleiðsluaukning í Eldisstöðinni Ísþóri ehf. Þorlákshöfn. 

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framleiðsluaukning Eldisstöðvarinnar Ísþórs ehf., úr 200 tonnum af lax- og regnbogasilungsseiðum á ári í 600 tonn, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Hana er einnig að finna hér


Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 15. maí 2014.