Fréttir


28.4.2014

Hreinsun kísilmálms til framleiðslu á 16.000 tonnum af sólarkísli á Grundartanga

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur ákveðið að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum



Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að hreinsun kísilmálms til framleiðslu á 16.000 tonnum af sólarkísli á Grundartanga skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.


Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 3. júní 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er einnig að finna hér.