Fréttir


  • Seyðisfjörður

23.5.2019

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði-Aldan og Bakkahverfi

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 10. júní 2019.

Seyðisfjarðarkaupstaður hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna á Seyðisfirði, Seyðisfjarðarkaupstað.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. júní 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.