Fréttir


11.9.2018

Staðfesting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. september 2018, Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035, sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. maí 2018. Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. gr.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda