Fréttir


24.10.2018

Staðfesting á Aðalskipulagi Breiðdalshrepps 2018-2030 í Fjarðabyggð

Skipulagsstofnun staðfesti 24. október 2018 Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn Fjarðabyggðar 30. júlí 2018.

Við gildistöku hins nýja aðalskipulags fellur úr gildi Aðalskipulag Breiðdalsvíkur 1983-2003.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. -32. gr. skipulagslaga.

 

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.